157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:12]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn hefur lýst því yfir að hún ætli að hagræða í ríkisrekstrinum um 100 milljarða á þessu kjörtímabili. Nú er liðið eitt ár þannig að á næstu þremur árum geri ég ráð fyrir að það þurfi að hagræða um 33 milljarða á ári. Hér höfum við Sjálfstæðismenn komið með hverja tillöguna á fætur annarri til að reyna að aðstoða okkar góðu vini í hæstv. ríkisstjórn; koma með hugmyndir að því hvernig við getum hagrætt í rekstri ríkisins. Hér er lítil hagræðingartillaga um að leggja niður stofnun sem er barn síns tíma, var stofnuð í kjölfar hrunsins, er algjörlega óþörf lengur. En nei, það er ekki neitt að gerast. En ég segi eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson: Við gefumst ekki upp og munum halda áfram að koma hér með hagræðingartillögur fyrir hæstv. ríkisstjórn sem ætlar að skera niður um 33 milljarða á næsta ári.