157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:13]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langaði til að lýsa ánægju minni yfir þessum liðum og hækkun á fjárframlögum til fjölskyldumála og nefna þar sérstaklega þolendamiðstöðina, Einhverfusamtökin, Kvennaathvarfið og Þroskahjálp. Öll þessi samtök eru að gera verulega góða og faglega hluti. Það hefur verið mikil aukning í fjölda skjólstæðinga þessara samtaka, þannig að ekki veitir af. Hér er ríkisstjórnin að gera virkilega góða hluti sem og í mörgum öðrum sambærilegum málum.