157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:15]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég segi já og mig langar sérstaklega að fagna löngu tímabærri fjármögnun á endurbótum á Stuðlum. Við erum að leggja milljarð í þær endurbætur, sem eru löngu tímabærar. Þarna er kjarnastarfsemi fyrir mjög illa stödd börn og ungmenni. Hún hefur bara verið í lamasessi eftir þennan ömurlega bruna sem þarna varð. Vonandi gengur þessi enduruppbygging hratt og vel fyrir sig. Ég fagna þessu og segi glaður: Já.