157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:21]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Ég held að af öllum vondum eða slæmum tillögum sem hafa komið fram hjá minni hlutanum eða stjórnarandstöðunni sé þessi sú allra versta. Að gera atlögu að uppbyggingu almenna íbúðakerfisins þannig að hér verði lítið sem ekkert byggt af hagkvæmum íbúðum á viðráðanlegu verði fyrir tekjulágt fólk held ég að fari yfir öll velsæmismörk. Það er ómannúðlegt og ómanneskjulegt að leggja slíkt til að mínu viti þar sem ég hef m.a. átt þátt í að byggja upp almenna íbúðakerfið. Ég segi því auðvitað þvert nei og verð að sama skapi fyrir miklum vonbrigðum með þessa tillögu minni hlutans.