157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:22]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Þetta er mjög góð tillaga. Þetta er tillaga sem er ekki ómanneskjuleg eins og hér hefur verið lýst af hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni. Hvað er hér um að ræða? Jú, við erum að taka hér 7,5 milljarða, 7.500 milljónir frá skattgreiðendum sem eiga að fara í niðurgreiðslur á stofnframlögum á ákveðnum íbúðum. Í staðinn erum við að leggja til að það færist yfir í að hækka endurgreiðslu á vaski á byggingarstað sem gerir þá öllum kleift sem vilja líka kaupa sér séreign að kaupa hana á lægra verði. Það gagnast öllum og líka lágtekjufólki að kaupa sér húsnæði á lægra verði. Að því hljótum við að stefna en ekki að fjölga hér leiguliðum um allt land og gera þeim ekki kleift að kaupa sér húsnæði.