fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér er um að ræða að leggja niður apparat sem heitir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Við höfum fengið mjög sterk skilaboð frá sveitarstjórnarfólki sem hefur átt mjög sérstök samskipti við þessa gæðastofnun og virðist vera sem hún sé alls kostar óþörf, sendir út spurningalista en getur ekki svarað hvernig eigi að svara spurningalistunum og þar fram eftir götunum. Því teljum við að þessum 200–300 milljónum sem er verið að spara þarna sé betur varið í eitthvað annað heldur en að eyða í svona apparat.