157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:31]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil bara koma hingað upp og aðeins varpa ljósi á sjónarmið okkar í Framsókn varðandi varasjóðinn. Það er verið að taka hann niður í lögbundið hlutverk sitt eða lögbundna stærð sem er 1%. Okkur finnst það afar óskynsamleg nálgun, sérstaklega í ljósi þess að mikil óvissa er uppi í efnahagsástandinu eins og við höfum farið vel yfir hér í fjárlagafrumvarpinu. Ég held því að það sé mjög óviturlegt að hafa lækkað varasjóðinn og vil bara benda á það að ég var að fara hér yfir fjáraukann sem við erum að fara að ræða hér einhvern tímann á eftir og ég get ekki betur séð en að samkvæmt fjáraukanum séum við að nota 14 milljarða á þessu ári úr varasjóðnum en hér er gert ráð fyrir 13,7 á því næsta.