157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:45]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mjög skynsamlega og ábyrga tillögu sem getur gagnast í svo mörgu sem hæstv. ríkisstjórn leggur áherslu á í sínum málflutningi, lækka skuldir ríkissjóðs og auka innviðauppbyggingu. Hér er t.d. innviðafélag þar sem er hægt að losa um töluverðar eignir og um leið draga úr áhættu ríkissjóðs og byggja upp aðra mikilvæga innviði eins og samgöngur, greiða niður skuldir og ná tökum á rekstri ríkisins, laga til í ríkisrekstrinum. Þetta er mjög ábyrg tillaga og mætir öðrum tillögum sem við höfum komið hér með til skattalækkana og annars. Það er sárt að sjá svo lítinn stuðning við tillöguna hér í þessum þingsal.