157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:46]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þm. Pawel Bartoszek sagði hérna áðan um að þarna er margt áhugavert. Ég vil líka undirstrika það að þegar menn eru í ríkisstjórnarsamstarfi, og það held ég að Sjálfstæðismenn ættu að þekkja, þá ná menn samkomulagi um það hvert á að fara vegna þess að flokkarnir sem mynda ríkisstjórn hafa ólíka sýn. Þeir höfðu svo ólíka sýn á síðasta kjörtímabili að þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið með fjármálaráðuneytið varð alltaf stefna VG ofan á. Allt þetta sem hér er undir hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft svo langan tíma til að framkvæma en ekki gert, að það er eiginlega bara grátbroslegt. Af hverju hefur þetta ekki verið gert fyrr? Hvers vegna? Hvar var karlmennskan? Hvar var stoltið? Hvar var það á síðasta kjörtímabili? Af hverju var Landsbankinn ekki seldur þá eða Pósturinn eða allt þetta? Hvers vegna? Maður spyr sig. Þessi ríkisstjórn er samhent. Hún kemur sér saman um ákveðna hluti. Hún er nú þegar búin að selja hlut í banka (Forseti hringir.) og gerði það með talsvert farsælli niðurstöðu heldur en síðasta ríkisstjórn gerði.