157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Mér finnst þingmenn vera fljótir að greiða atkvæði í þetta skiptið. Þeir ættu kannski að kynna sér málið sem við erum að ræða hér. 2. liður þessarar breytingartillögu við 6. gr. snýst um að liður 7.8 falli brott. Í stuttri greinargerð með málinu kemur fram:

„Í 2. tölul. er lagt til að felld verði brott heimild ráðherra til að afsala, í samráði við utanríkisráðuneyti, flugbrautakerfi, tengdu akbrautakerfi og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli til Isavia ohf. Með tilliti til þess hvernig heimsmálin hafa þróast á undanförnum árum telur 3. minni hluti eðlilegt að heimildin falli brott. Hér er um grunninnviði að ræða sem varða varnar- og öryggismál þjóðarinnar.“

Ég verð að segja að það mun koma mér mikið á óvart ef greidd verða atkvæði gegn þessari tillögu. Þetta varðar grundvallaröryggis- og varnarmál þjóðarinnar. Þessi heimild hangir þarna inni og kemur mér gríðarlega á óvart að hún skuli vera þarna.