157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[19:31]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir svarið, sem var svar en ekki spurning og því er búið að snúa þessum lið á hvolf. Ég greindi ekki spurningu í þessu heldur svar, þannig að ég veit ekki alveg hverju ég á að svara í þessu svari mínu. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að skýra þetta út fyrir mér. Ég skil þetta betur núna en ég hlakka til að hitta hæstv. ráðherra fyrir fjárlaganefnd þar sem við getum átt betra og dýpra spjall með betri greiningu á þessu. Þetta er sennilega með betri andsvörum sem ég hef fengið í þessum þingsal, virðulegur forseti. [Hlátur í þingsal.]