orð forseta.
Frú forseti. Ég held að þingheimur hafi allur beðið eftir því hvað hæstv. forseti myndi gera í upphafi fundar og eflaust vonast til þess, í ljósi atburðanna hér síðastliðinn föstudag og þeirra orða sem hér voru látin falla, að hún myndi ávarpa þingheim formlega; ekki eingöngu í fjölmiðlum heldur myndi hún gera það persónulega við okkur. Mér þykir miður að forseti hafi ekki gert það. Ég vil kalla eftir því og spyrja hæstv. forseta hvort hún telji ekki tilefni til þess að ávarpa þingheim og biðja okkur formlega afsökunar á ummælum sínum.