157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

orð forseta.

[10:35]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er í nokkurri forundran að ég kem hér upp í ræðustól, þriðji þingflokksformaður stjórnarandstöðunnar sem kemur hér upp, eftir að virðulegum forseta hefur gefist tækifæri í tvígang til að ávarpa þingmenn vegna afar óviðurkvæmilegra orða sem féllu hér í þingsal á föstudaginn var. Ég minnist þess ekki að forseti Alþingis hafi látið slík ummæli falla eða eitthvað sambærilegt í garð samþingmanna, hvort sem þeir eru í stjórnarmeirihluta eða stjórnarandstöðu. Þessi hegðun, og kannski ekki síst viðbrögðin í kjölfarið, er ekki til þess fallin að auka á samstarf og greiða fyrir afgreiðslu mála hér á þingi. Það hlýtur öllum að vera ljóst.