157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

orð forseta.

[10:36]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti þakkar hv. þingflokksformönnum fyrir að taka málið upp á þingi og er ljúft og skylt að biðjast afsökunar á þeim orðum sem féllu hér á ganginum á föstudaginn var. Þau féllu í miklum hugaræsingi og ég biðst innilega afsökunar á því. Ég bið hv. þingmenn alla afsökunar á þeim orðum sem hér féllu og vonast sannarlega til að ekkert slíkt hendi mig aftur hér í þingsal.

Ég bið þess að hv. þingmenn taki afsökunarbeiðnina gilda. Hún er einlæg. Það hefur enginn verið jafn miður sín yfir því sem hér gerðist á föstudaginn og sú sem hér stendur. Hér með er sú afsökunarbeiðni, sem áður hefur reyndar komið fram annars staðar, ítrekuð og ég biðst einlæglega afsökunar á þeim ummælum sem hér féllu.