orð forseta.
Frú forseti. Hún kemur nokkuð á óvart þessi viðkvæmni hjá stjórnarandstöðunni gagnvart þessum ummælum sem féllu hér, þessum óheppilegu ummælum. Nú er búið að biðjast afsökunar og ég held að þetta mál sé frá. En mér finnst rétt að við lítum öll í eigin barm. Ég vil nú minnast þess að það hafa verið hér hv. þingmenn, t.d. í Sjálfstæðisflokknum, sem hafa farið geyst í ummælum, m.a. um hæstv. ráðherra, sagt þá hættulega. Ekki ætla ég að minnast á ummæli Miðflokksmanna hér, mér finnst það kannski ekki við hæfi. Ég held að við eigum bara að taka þessu sem ábendingu til okkar allra um að vanda okkur hér í þessum ræðustóli og á þinginu og sýna hvert öðru kurteisi.