orð forseta.
Frú forseti. Ég hlýddi á afsökunarbeiðni frú forseta og mat hana einlæga. Ég reiknaði þar af leiðandi með að hér færu ekki fleiri upp í fundarstjórn forseta að þessu sinni. Ég held að hv. þm. Sigurjón Þórðarson hafi ekki beinlínis verið að hjálpa til við að ná hér góðum vinnuanda og sáttum um framhaldið. Ég ætla hins vegar ekki, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, að bíta á öngulinn. Ég ætla að leggja til að það andrúmsloft sem mér finnst vera hér í salnum núna haldi svo að við getum farið að vinna; og að hv. þm. Sigurjón Þórðarson lesi salinn nú örlítið betur.