157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það var að vísu raunverulega það sem gerðist. Það var hér kílómetragjald og það var ákveðið, vegna flækjustigs og óskýrleika, að taka það af og innleiða það kerfi sem við búum við í dag. Svo gerist það, eins og hv. þingmaður nefnir, að nýorkubílarnir voru ekki að greiða neitt til vegakerfisins og því var farið af stað með þetta og ýmsar aðrar breytingar. Kílómetragjaldið var því sett á þá en ekki aðra bíla. Nú erum við með annað frumvarp um vörugjöld þar sem verið er að hætta að láta nýorkubílana greiða vörugjöld. Mér finnst ákveðin mótsögn í þessu og sé ekki hina raunverulegu þörf á því að setja í þetta mikinn aukakostnað, taka upp kerfi sem hefur verið aflagt áður vegna flækjustigs, af því að það eru til fleiri og einfaldari leiðir til þess að (Forseti hringir.) mæta breytingu á eyðslu bílanna eins og hefur verið gert nú þegar. Ég sé ekki enn hver hinn raunverulegi tilgangur er. Og ekki sjást þess merki hjá þessari ríkisstjórn að þessir fjármunir séu að fara í vegakerfið.