kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Það skýtur skökku við að hæstv. ríkisstjórn kvartar iðulega undan fyrri ríkisstjórn og þeirra málum en tekur samt inn á færibandi málin frá fyrri ríkisstjórn. Þetta mál er m.a.s. mál sem var ekki áhugi fyrir að klára af því þetta er ekki gott mál. Þetta er gallað mál. Þetta býr yfir gríðarlega miklu flækjustigi fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stjórnvöld. Mig langar því að spyrja hv. þm. Pawel Bartoszek: Af hverju heldur hann að við séum fyrsta landið í heiminum sem er að taka þetta upp? Önnur lönd hafa verið að skoða þetta, þau telja þetta algerlega óraunhæft. Þau eru að skoða það að taka upp kílómetragjöld á rafmagnsbifreiðar og það á að gerast eftir nokkur ár yfir nokkurra ára tímabil. Ég velti fyrir mér: Af hverju heldur hv. þingmaður að önnur lönd treysti sér ekki til að taka þetta upp? Getur það verið út af flækjustiginu? Og hvort er þetta tekjuöflun eða leið fyrir orkuskipti? Ef þetta er leið fyrir orkuskipti þá er verið að hækka mjög skattana á bílana sem minnstu eyða. Ég velti því þess vegna fyrir mér hvort þetta sé tekjuöflun eða leið fyrir orkuskipti.