157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Markmiðið með frumvarpinu er fyrst og fremst tekjuöflun. Stundum þegar maður skattleggur einhverja neyslu er maður að gera það með það að markmiði að lágmarka neysluna. Með áfengissköttum og tóbaksgjöldum er takmark ríkisins t.d. svolítið það að draga úr því að fólk sé að neyta umræddra efna. Það er ekki langtímamarkmiðið hér að koma í veg fyrir að fólk keyri bíla heldur að tryggja að það séu til fjármunir til að greiða fyrir notkun á vegakerfinu. Þegar kemur að spurningunni um hvers vegna við séum fyrsta landið í heiminum til að taka þetta upp — nú rengi ég það ekki en ég ætla kannski að skoða hvort við séum fyrsta landið til þess — þá hef ég lesið margar skýrslur um þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki ný af nálinni. Ég get mér þess til að ástæðan fyrir því að við séum framarlega í röðinni séu landfræðilegar aðstæður, þ.e. að það sé auðveldara fyrir eyland eins og Ísland að innleiða slíkt kerfi en t.d. fyrir land sem hefur landamæri að mjög mörgum öðrum löndum. Ef við værum t.d. að tala um Belgíu eða Lúxemborg myndi ég sjá fyrir mér að það væri meira flækjustig fyrir þannig land að innleiða kílómetragjald án þess að hafa samráð við nágrannaríki sín, en við búum við þann munað að geta það.