157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:11]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Í síðara andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af tímarammanum. Þetta á að taka gildi eftir nokkra daga. Það er alveg á hreinu að fyrirtækin verða ekki tilbúin. Stjórnsýslan verður ekki tilbúin. Af hverju, ef þið ætlið að keyra þetta áfram, tekur þetta ekki gildi 1. janúar 2027? Þá standið þið við kosningaloforðin eða aukið kannski bara útgjöld um 140 milljarða í staðinn fyrir 143 og þurfið ekki að hækka skatta á bifreiðaeigendur þó að þið ætlið í kerfið. Þarna eruð þið að hækka skatta þegar þið lofuðuð að gera það ekki. Þannig að ég velti fyrir mér hvort það trufli ekki hv. þingmann að hans flokkur sé að svíkja kosningaloforðið um að hækka ekki skatta. Fyrir hvað? Fyrir frumvarp sem er meingallað. Svo er þetta mikill landsbyggðarskattur. Ég velti fyrir mér hvort það valdi hv. þingmanni áhyggjum. Svo velti ég því líka fyrir mér hvort ekki megi gera þetta saman, eyðslugrennstu bílarnir nýti hvatann, að fólk haldi áfram að geta keypt þá.