157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta mál vinnur raunverulega gegn þjóðhagslegum ábata af ferðaþjónustu. Það hefur neikvæðar afleiðingar gagnvart þeim svæðum þar sem verður verri dreifing erlendra ferðamanna og þá nýtum við vannýtta innviði vítt og breitt um landið, sérstaklega á þeim svæðum sem standa fjærst höfuðborgarsvæðinu, verr. Höfuðmarkmið íslenskrar ferðaþjónustu í dag er að nýta þessa vannýttu innviði á þeim svæðum sem standa lengst frá höfuðborgarsvæðinu. Ég er að tala um Norðausturkjördæmi, Vestfirði sérstaklega og allt norðanvert landið og Austurland. Það er alveg ljóst í þessu máli. Eins og ég kom inn á í fyrra andsvari þá leigja 60–65% erlendra ferðamanna sem koma til Íslands sér bílaleigubíl. Þetta er dreifileiðin. Þess vegna er þetta svo stórt mál á Íslandi umfram önnur lönd. Þetta er risamál í okkar efnahagslega veruleika sem við búum við á Íslandi í dag og úti í hinum dreifðu byggðum. Þetta mál er til vansa, það sem snýr að þessum dreifðu byggðum.