157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

siðareglur alþingis.

[13:01]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég lít svo á að það sé sameiginlegt verkefni okkar sem kjörin hafa verið til setu á Alþingi að gæta að virðingu Alþingis. Þegar misbrestur verður þar á ber okkur sem gegnum formennsku í stjórnmálaflokkum sérstök skylda til að bregðast við. Forseti Alþingis, sem er forseti alls þingsins en ekki aðeins meiri hlutans, lét hér í þingsalnum falla svívirðingar í garð stjórnarandstöðunnar. Slíkur fúkyrðaflaumur er algjörlega óásættanlegur, hvort sem það er á þessum stað, sem er okkur öllum svo mikilvægur, eða annars staðar. Það verður ekki hjá því litið að þessi sami forseti sagði við þingsetningu í haust að traust til hennar hefði beðið hnekki eftir framgöngu hennar í lok síðasta þings og að hún þyrfti að vinna það traust til baka. Hvers virði reyndust þau orð?

Þetta er því miður ekki einsdæmi. Í sumar heyrðum við hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra tala úr ræðustóli Alþingis á þá leið að draga stjórnarandstöðuna undir húsvegg og skjóta þá. [Framíköll í þingsal.] Hæstv. forsætisráðherra sá enga ástæðu til að fordæma þau ummæli. Alþingi hefur sett sér siðareglur og þar segir t.d. að alþingismenn skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni.

Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Telur hún í ljósi alls þessa að siðareglur fyrir alþingismenn og ráðherra hafi yfir höfuð nokkurn tilgang þegar slík framkoma gengur ítrekað án nokkurra afleiðinga?