siðareglur Alþingis.
Virðulegi forseti. Svar forsætisráðherra veldur mér miklum vonbrigðum. Forseti þings baðst ekki afsökunar í upphafi þingfundar, gerði það bara alls ekki. Í stað þess að átelja eða fordæma ömurleg ummæli forseta Alþingis kýs forsætisráðherra að gera lítið úr alvarleika málsins og reyna að breiða yfir vandann og það ekki í fyrsta sinn. Á að skilja orð forsætisráðherra svo að henni finnist í lagi að forseti þingsins uppnefni fulltrúar þjóðarinnar með slíkum fúkyrðum og hér var gert? Við þingsetningu í haust sagðist forseti Alþingis ætla að vinna aftur traust eftir að hafa beitt úrræðum gegn minni hlutanum en framkoman er algerlega óásættanleg. Hafa þær yfirlýsingar um virðingu og traust enga þýðingu? Það er ljóst að hæstv. forsætisráðherra heldur hlífiskildi yfir samherja sínum á kostnað heilbrigðrar umræðuhefðar. Telur forsætisráðherra virkilega að siðareglur þingsins eigi aðeins að gilda um aðra stjórnarliða (Forseti hringir.) án þess að það grafi undan trausti á Alþingi? Mig langar (Forseti hringir.) að bæta við: Hefur forsætisráðherra í hyggju að standa vörð um siðareglur þingsins og grundvallarviðmið um virðingu í samskiptum eða má draga þá ályktun að siðareglur Alþingis séu algerlega marklaust plagg?
(Forseti (EÁs): Forseti minnir á að ræðutími er ein mínúta í síðari fyrirspurn.)