bygging flugstöðvar í Reykjavík.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið eins langt og það náði. Það fjallaði reyndar mjög lítið um meiri hlutann í borginni þar sem eru bæði Samfylkingin og Flokkur fólksins en Flokkur fólksins og Samfylkingin í ríkisstjórn eru hér með að staðfesta það að Reykjavíkurflugvöllur verður festur í sessi í það minnsta næstu 20 árin plús. Það þýðir að það þarf að breyta aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Það er þá í höndum núverandi meiri hluta að fylgja því eftir ef það er stefna ríkisstjórnar Samfylkingar og Flokks fólksins og í þessu tilviki líka Viðreisnar. Það er auðvitað mikilvægt. Það er líka áhugavert þegar maður les í gegnum samgönguáætlunina, en henni skal fylgja umhverfismatsskýrsla, að í þessu tilviki er sagt: Hér þarf ekki að fylgja nein umhverfismatsskýrsla vegna þess að hún var unnin á við síðustu áætlun og breytingarnar á milli áætlunar 2023 og þeirrar sem nú er eru svo litlar að það þarf enga umhverfismatsskýrslu. Það er áhugavert í ljósi þess sem ríkisstjórnin kynnti á miklum skrautsýningarblaðamannafundi um daginn.