breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Í haust mælti hæstv. fjármálaráðherra fyrir mál um breytingu á lögum um skatta, tolla og gjöld. Ég fann að því við 2. umræðu, minnir mig, að fyrirsögn frumvarpsins væri nú ekki lýsandi fyrir málið sjálft. Það var tekið fram að þetta væri mál sem varðaði peningaþvætti og viðurlög. Síðan hefur komið í ljós og á það hefur verið bent í fjölmiðlum undanfarið, einkum í umfjöllun Viðskiptablaðsins í vikunni, að með þessu frumvarpi sé verið að leggja til að fallið verði frá fortakslausri skyldu skattyfirvalda til að endurgreiða ofgreidda skatta. Ég hef nú farið yfir málið í ljósi þessara frétta og fæ ekki betur séð, virðulegur forseti, en að þessari miklu breytingu hafi einhvern veginn verið lætt inn í frumvarpið. Ég hjó eftir því að í framsögu sinni um málið nefndi hæstv. fjármálaráðherra þetta ekki á nafn. Nú hefur málið verið afgreitt út úr nefnd og bíður 3. umræðu. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra í raun hvaðan þessi hugmynd kemur að þessari undarlegu breytingu sem að mínu mati stangast á við stjórnarskrá. Og af því ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er umhugað um EES-samninginn stangast hún að mínu mati líka á við EES-samninginn eins og hann hefur verið túlkaður, m.a. af EFTA-dómstólnum og eins Evrópudómstólnum þegar kemur að dómum er varðar leiðréttingu á ofteknum sköttum þar sem fortakslaus krafa er gerð til þess að þeir sem eru í sömu stöðu fái ofgreidda skatta endurgreidda. Ég spyr: Hvaðan kemur þessi hugmynd? Mig langar líka að spyrja hvort hæstv. fjármálaráðherra hafi verið meðvitaður um að í þessu frumvarpi sem ég nefni hér hafi leynst þessi mikla breyting um það að falla frá fortakslausri kröfu á hendur skattyfirvöldum um endurgreiðslu ofgreiddra skatta?