breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna. Nú tek ég auðvitað ekki undir þá túlkun sem hv. þingmaður kom með. Það sem verið er að gera hér er að samræma reglur. Ákvæði þessu hliðstætt hefur verið í lögum um virðisaukaskatt frá því að þau voru samþykkt. Það er raunverulega verið að leiða þarna saman og samræma framkvæmdina á þessum lögum og öðrum lögum. Nú geta menn auðvitað rætt um það hvort það eigi að skilja eftir matskenndar heimildir en þessi matskennda heimild sem hefur verið í lögum um virðisaukaskatt hefur einfaldlega þróast í framkvæmd úrskurða og dóma. Það sem verið er að reyna að gera með breytingum eins og þessum er að tryggja að einhvers konar jafnvægi sé milli skilvirkni á rekstri skattkerfisins og réttaröryggis.