157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

verk ríkisstjórnarinnar.

[13:32]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara svona útúrsnúningi og dylgjum. Hér eru mjög stór orð og mjög sterkar ásakanir látnar falla. Það er sjálfsagt mál að stíga hér upp og svara fyrir, líkt og ég hef gert í óundirbúnum fyrirspurnatíma upp á síðkastið, hvert samhengi hlutanna er. Það hefur legið fyrir. Gott og vel. Það er allt í lagi að vera í átökum en við skulum líka halda okkur við aðalatriði máls í staðinn fyrir að vera hér í útúrsnúningum. Horfum á verkin því að það er það sem fólk er að bíða eftir þarna úti, ekki fyrirsögnum, ekki þessum línum, og það erum við mætavel meðvituð um. Við vitum vel að það þýðir ekki að fylgja ekki blaðamannafundum eftir. Þess vegna viljum við klára samgönguáætlun. Við vitum vel að ráðast þarf í ákveðnar strúktúrbreytingar víða í kerfinu. Þess vegna erum við að taka ákvarðanir sem fólk hefur í áraraðir átt erfitt með og já, því fylgja stundum óþægilegar uppákomur. Hér hefur fólk beðist afsökunar á ummælum sem eru látin falla einhvers staðar í þessu þinghúsi í hita leiks. Gott og vel, viðkomandi hefur beðist afsökunar, það hafa komið skýringar. Ég bið fólk að hlusta á þær skýringar frekar en að hjakka í sama farinu. Ræðum um pólitík. Hvað vill hv. þingmaður gera í fjármálum ríkisins? Hvað vill hann gera þegar kemur að útgjaldamálum? Hvað vill hann gera í velferðarmálum? Hvernig hefði hann hagað samgönguáætlun ef hann hefði verið við völd? Við skulum ræða það hérna inni. Það er það sem fólkið þarna úti vill heyra okkur tala um.(Gripið fram í: Heyr, heyr.)