157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

viðbrögð við ákvörðunum ráðherra.

[13:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á því að það er hlutverk þingsins að veita hæstv. ráðherrum aðhald. Hér í fyrirspurnartíma áðan svaraði hæstv. forsætisráðherra fyrirspurn hv. þm. Ingibjargar Isaksen um brottvikningu, eða hvað hæstv. ráðherra vill kalla það, skólameistarans á Egilsstöðum með þeim hætti að hæstv. ráðherra hafði hvergi komið þar að né að öðrum ákvörðunum um að auglýsa stöður skólameistara. Hæstv. forsætisráðherra er nýbúinn að segja þinginu að hann hafi verið hafður með í ráðum þegar skólameistara Borgarholtsskóla var vikið úr embætti eða staða hans auglýst og vottaði það af eigin reynslu og aðkomu að þar hefði verið faglega unnið. Þetta fer ekki saman, frú forseti, (Gripið fram í.) og ég fer fram á það að hæstv. forseti hlutist til um það að leitt verði í ljós hvað er satt og hvort hæstv. forsætisráðherra hafi greint þinginu rangt frá í dag eða síðast þegar þessi mál voru rædd.