157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[13:42]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Við vorum með breytingartillögur í þessu máli sem hafa ekki náð fram að ganga sem þýðir að ég mun greiða atkvæði gegn þessu, enda er þarna verið að þoka áherslunni í inntöku í framhaldsskóla í átt frá árangri sem er kannski heldur sýnin sem við þyrftum á að halda á þessum síðustu og verstu tímum. Sömuleiðis eru þarna ákvæði sem við getum ekki fellt okkur við, eins og kemur fram í nefndaráliti, í sambandi við starf nemendafélaga.

Að öðru leyti eru þarna þættir sem eru ósköp eðlilegar breytingar að ég tel, en hinir þættirnir sem við höfum vakið athygli á í nokkuð löngu máli við ýmis tilefni verða þess valdandi að maður getur ekki fellt sig við þessar breytingar sem færa okkur í átt frá megináherslunni sem á að vera árangur nemenda. Þar er jafnræði nemenda eins og við höfum heyrt frá nemendum en sú leið er ekki farin hér. Sömuleiðis eykur þetta einsleitni í skólakerfinu milli skóla en ekki fjölbreytileika. (Forseti hringir.)