framhaldsskólar.
Forseti. Ég styð þetta mál og vil draga fram að hér er um heimildarákvæði að ræða. Það skiptir máli fyrir framhaldsskólana að geta líka litið til sinna sérkenna, til síns umboðs en líka til þess að það sé ýtt undir fjölbreytileikann. Það er ekki verið að draga úr kröfum þess að það verði litið til einkunna. En þekkjum við ekki mörg dæmi þess að horfa upp á framúrskarandi tónlistarfólk sem fær það síðan ekki metið inn í framhaldsskólann, eða íþróttafólk, framúrskarandi íþróttamenn sem fá þetta ekki metið inn? Þannig að auðvitað styð ég það að sjálfstæði skólanna verði varið með því að veita skólameisturum heimild til að meta ýmsa þætti, fjölbreytta þætti, (Gripið fram í.) sem ýta einmitt undir skólastarfið. Það er, held ég, til bóta fyrir skólasamfélagið í heild sinni.
Ég segi já.