kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Nú ræðum við hin blessuðu kílómetragjöld sem hafa komið oft og lengi til umræðu hér. Ég held að þetta sé í fjórða sinn sem þetta er rætt á einn eða annan hátt hér í þingsalnum sem frumvarp. Ég vil bara byrja á að segja í upphafi ræðu minnar — þar sem ég flyt nefndarálit okkar í 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem erum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, sá sem hér stendur ásamt hv. þm. Hildi Sverrisdóttur — að við teljum að þetta sé algerlega óþarft mál, þetta sé mál sem flæki kerfið, skili ekki þeim árangri sem það er sagt eiga að skila heldur stækki bákn ríkisins, leysi engan vanda og geri ekkert annað en að búa til meira vesen í rekstri fyrirtækja og flækja líf fólks og draga úr samkeppnishæfni landsins og lengi mætti telja og leggjum því til að þessu máli verði vísað frá. Svo það sé á hreinu í upphafi máls míns þá er þetta bara ekki góð hugmynd sem ég held að ætti ekki að ná fram að ganga og því er það tillaga okkar í þessu nefndaráliti.
Þá skulum við aðeins ræða um hvað þetta snýst. Hér er komið fram frumvarp um að setja kílómetragjald á notkun allra ökutækja, sem eru í 29 gjaldaliðum, yfir 300.000 ökutæki. Það eitt segir okkur hversu flókið og snúið þetta er. Það hefur lengi verið spurt hvort þetta hafi ekki verið sett af stað á vakt Sjálfstæðisflokksins, af stað á vakt fyrri ríkisstjórnar sem talar gegn þessu í dag. Jú, það er alveg rétt og þá skulum við bara byrja hér í upphafi, áður en ég held lengra, á að fara aðeins yfir það. Þannig var mál með vexti að fyrri ríkisstjórn, eða þarsíðasta ríkisstjórn, gerði mikla skattalega hvata til að fjölga nýorkubílum og nýjum ökutækjum sem myndu menga minna sem var efnahagslega hagkvæmt, það að fjölga ökutækjum sem nýta íslenska orkugjafa dregur úr innflutningi á eldsneyti þannig að við séum minna háð öðrum, og að hér kæmu umhverfisvænni bílar sem myndi skapa betri loftgæði og draga líka úr innflutningi. Það gerði það að verkum að hin beinu notkunargjöld af vegakerfinu drógust saman á tímabilinu um einhverja 7 milljarða árlega.
Um leið skal samt á það bent að tekjur af ökutækjum drógust ekki saman því að þessar skattalegu ívilnanir ásamt auknum umsvifum í efnahagslífinu, sérstaklega í ferðaþjónustunni, hjá bílaleigum og öðrum, stækkuðu bílamarkaðinn þannig að það komu meiri vörugjöld, meiri virðisaukaskattur og önnur slík notkunargjöld af ökutækjum, þannig að heildarumsvifin voru svo sem svipuð þótt þessi beinu notkunargjöld sem olíu- og bensíngjöldin eru — en það var ákveðið að reyna að bregðast við þessum samdrætti í þessum beinu notkunargjöldum. Til þess var stofnuð verkefnastofa sem átti að finna leið til að fá nýorkubílana; rafmagnsbílana og tengiltvinnbílana og annað slíkt sem tóku lítið sem ekkert eldsneyti eða voru mun sparneytnari — og það var búið að ná það miklum árangri í umskiptunum að það taldi rétt að það færu allar bifreiðar að borga fyrir notkun á vegakerfinu. Það var ekki forsvaranlegt lengur að ein tegund ökutækja fengi afslátt af notkun á vegakerfinu umfram aðrar. Það var ástæðan fyrir því að þetta var sett af stað. Við þá niðurstöðu kom þessi hugmynd út úr verkefnastofunni að taka upp kílómetragjald. Ég get viðurkennt að ég var aldrei neitt mjög hrifinn af þeirri leið persónulega.
Það voru skiptar skoðanir um það hvort þetta væri rétta leiðin en samhliða þessu árið 2019 fór mikil umræða hér fram í þessum þingsal og í meðförum umhverfis- og samgöngunefndar á samgönguáætlun sem var samþykkt vorið 2019, um það að hin beina notkun á vegakerfinu færi best fram með svokölluðum veggjöldum sem eru þá notkunargjöld sem eru rukkuð við einstaka samgöngumannvirki. Það er leið sem hefur virkað vel á Íslandi, Hvalfjarðargangaleiðin. Hún virkaði vel, svo vel að við fengum Hvalfjarðargöngin og það var miklu arðbærari framkvæmd en nokkur þorði að vona og sú andstaða sem var við þá leið hvarf fljótt þegar fólk sá hvernig þarna skiluðu fjármunir sér beint í uppbyggingu samgöngukerfisins. Færeyingar tóku þessa leið upp og rukka núna í öll göng sem liggja inn að Þórshöfn. Notkunin er mikil þannig að þeir geta verið í miklum samgönguframkvæmdum með því að rukka fyrir notkun á stofnleiðunum inn að Þórshöfn. Það var það sem við samþykktum á Alþingi vorið 2019, þannig myndum við borga þetta upp.
Því var ég ekki mjög kátur þegar Stjórnarráðið og ráðherrar síðustu ríkisstjórnar lögðu áfram til að fara í kílómetragjald. En þar sem veggjöldin voru ekki komin lengra og það var þessi samdráttur í tekjum og það þurfti að setja fjármagn í samgöngukerfið þá var ákveðið að fara varfærna leið og til að reyna að láta öll ökutæki greiða fyrir notkun, ekki undanskilja sum ökutæki frá notkun á vegakerfinu, var ákveðið að taka kílómetragjaldið á mjög afmarkaðan hluta bifreiðakerfisins eða sem sagt nýorkubílana; rafmagnsbílana og tengiltvinnbílana. Það var ákveðið að gera það til þess að þeir færu að borga eins og önnur ökutæki. Það eru innan við 50.000 ökutæki, ef ég man rétt, og að megninu til einn til tveir bílar á heimili, svona þessi almenni fjölskyldubíll, og atvinnurekstur ekki með þetta í miklum mæli þannig að það var miklu umfangsminna, miklu minna flókið að framkvæma það. Svo voru þetta líka lægri upphæðir per kílómetra þannig að það var ekki jafn mikil kostnaðarkúrfa í því fyrir atvinnulíf og aðra að fá þau kílómetragjöld þótt þau myndu ekki innheimtast öll og annað slíkt. Það var ágætisleið til að kanna hvernig þetta kerfi virkar raunverulega og annað slíkt.
Á sama tíma voru hin almennu vörugjöld lækkuð um 0% á nýorkubílum og sett upp í 5% og bifreiðagjaldið á þeim ökutækjum hækkaði líka og virðisaukaskattsívilnun var tekin af. Þannig voru tekjur af nýorkubílum farnar að aukast töluvert í takt við það sem kemur fram í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2028 sem núverandi stjórnvöld vísa oft í, þannig að allt hefur þetta sínar skýringar og allt var þetta ákveðin saga sem núverandi stjórnvöld ákváðu að útskýra á sinn hátt og snúa öllu á hvolf og fara ekki rétt með einn staf þegar þau vitna í þetta. Þess vegna var mikilvægt að hafa þennan fyrirvara hér í upphafi og segja núverandi hæstv. stjórnvöldum að þau verði bara að kannast við það að þau eru að tala í hringi og þau eru að seilast dýpra í vasa skattgreiðenda af því að þau geta ekki stillt útgjöldum sínum í hóf eða dregið úr öðrum útgjöldum. Það er vandamálið sem við erum að takast á við hér og ég bið þau um að vera ekki að nota á rangan hátt einhver önnur gögn til að rökstyðja sig út úr þeirri vitleysu. Það er bara þannig.
En þá erum við komin að þessu: Það er búið að loka gatinu þannig að ég tel enga þörf, ég sé ekki ástæðuna fyrir því að taka upp þetta kerfi á hina 300.000 bílana í 29 gjaldaliðum þar sem það er búið að leysa vandamálið sem var farið af stað með í upphafi, og núverandi stjórnvöld hafa á stefnuskrá sinni, bæði í fjármálaáætlun og nýkynntri samgönguáætlun, að stofna innviðafélag, sem er í takt við það sem ég lýsti hér áðan, veggjöld. Það er skynsamlegasta, fljótvirkasta, besta og reyndasta leiðin til að fjármagna innviðafélag. Því er enn þá minni þörf á þessu miðað við frekari áform núverandi stjórnvalda.
Þá skulum við fara og bera saman þetta kerfi sem er verið að setja á, sem er sagt hafa að markmiði að bregðast við samdrætti í tekjum, sem mér hefur líka þótt skrýtið, að vera á sama tíma svo að bakka með þær aðgerðir sem voru gerðar til að draga úr samdrætti í tekjum, eins og að afnema vörugjöld af nýorkubílum. Nú er verið að gera það með öðru þannig að þarna talar sitthvor tillagan gegn hvor annarri hjá núverandi stjórnvöldum, en í dag eru sem sagt bensín- og olíugjöld ásamt virðisaukaskatti og kolefnisgjaldi innheimt við bensíndæluna þannig að fyrir alla notkun á vegakerfinu er greitt á staðnum þegar þú dælir eldsneyti á bifreiðina. Því meira sem bifreiðin mengar, því meira eldsneyti þarf hún og ef hún er t.d. vörubifreið sem er fulllestuð þá eyðir hún meira heldur en þegar hún er ekki fulllestuð og annað slíkt. Þannig að þetta er kerfi sem þú greiðir fyrir án þess að skrá eitthvað sérstaklega eða annað slíkt. Þetta er bara komið inn á reikninginn og er fyrirsjáanlegur kostnaður og það eru fjögur olíufélög sem bera ábyrgð á því að skila þessu til ríkisins, fjögur olíufélög en ekki nokkur hundruð þúsund notendur sem þurfa að gera það.
Bara við það litla kílómetragjaldskerfi sem er í gangi núna hafa komið upp alls kyns áskoranir sem gefa atvinnulífinu og heimilunum tilefni til að senda inn athugasemdir og upplýsa okkur um margar áhyggjur og margt flækjustig sem hefur komið upp sem hefur ekki enn tekist að laga. Það sést með þessu nefndaráliti hér sem meiri hlutinn er með og þótt þetta sé í fjórða sinn og það sé enn komin reynsla á kerfið og það sé búið að vinna með heilli verkefnastofu í þessu er enn þá fullt af tæknilegum breytingum, sem sýnir okkur hversu mikið flækjustig þetta er. Frá því kerfi sem er í dag og yfir í nýja kerfið þarf — og það sést nú bara síðast í breytingartillögu við fjárlögin núna — að bæta í bákn ríkisins til að fjölga starfsfólki og fara í tölvukerfi og aðra umsýslu, hátt í 300 milljónir. Ríkisreksturinn blæs út um 300 milljónir, bara við innleiðingu á þessu kerfi og þá er ónefndur allur annar beinn og óbeinn kostnaður sem atvinnulífið og ríkisstofnanir verða fyrir. Það er ótalið í þessu og það er hvergi að finna í þessu frumvarpi eitthvert mat á þeim áhrifum sem þetta hefur til kostnaðar fyrir atvinnulífið, þann kostnað sem þetta er fyrir ríkisstofnanir sem gera út marga bíla og hvergi áhrif á þá verðteygni sem þetta hefur á íslenska ferðaþjónustu og til að draga úr samkeppnishæfni. Ekkert af þessu áhrifamati liggur fyrir, ekki neitt.
Þegar ég var að bera þessi tvö kerfi saman var hér uppi kílómetragjald áður. Það var svo flókið, ógagnsætt og óskilvirkt að það var ákveðið að taka upp núverandi kerfi. Nú hefur núverandi kerfi verið í gangi í áratugi síðan og þá vil ég benda á að það er einfalt og það er hægt að draga úr gjöldum á ökutæki og annað slíkt. Ef veggjöldin væru tekin upp væri hægt að fella niður t.d. bifreiðagjöldin og mögulega vörugjöld af bílum almennt. Það er skoðun Sjálfstæðisflokksins að markmiðið sé að komast á þann stað að bifreiðar og ökutæki beri engin vörugjöld. En hvað um það, í nýju kerfi sem verið er að leggja til hér þarf að fara að skrá reglulega kílómetrastöðuna. Það fara að verða eftiráreikningar. Aðilar eru að fá sama reikninginn frá þremur til fjórum mismunandi ríkisstofnunum, hvort sem það er island.is, frá Skattinum og ég veit ekki hvað eftir hvað. Svo er alltaf uppgjör, þá eru fjórir bakreikningar. Hver rafræn færsla í bókhaldi kostar, algeng tala er oft svona milli 10 og 15 kr. eftir því hvaða bókhaldsforrit er notað og hversu stór notandinn er sem bætist aukalega inn og hvert seðilgjald er 34–38 kr., 300.000 kr. seðilgjald til bankanna í hverjum einasta mánuði. Bílaleigurnar eru búnar að selja fram í tímann. Þær geta ekki rukkað, þær hafa reynslu af því að innheimta ekki nema um 70–80% af gjaldinu. Það er kostnaður sem leggst beint á atvinnugrein þar sem hagnaðurinn hefur verið að dragast saman um 73% á síðustu árum, 73% samdráttur í ferðaþjónustu hvað bílaleigurnar varðar, 56% í ferðaþjónustunni í heild. Eins og ég sagði áðan fer þetta þar inn í verðteygnina.
Þeir sem innheimta kílómetragjaldið eins og í gegnum bílaleigur og önnur notkunargjöld þurfa að borga, held ég, 2% til kortafyrirtækjanna. Þarna er ríkissjóður að setja þvílíkar auka- og faldar álögur á atvinnulífið, atvinnulífið sem er að takast á við mjög stórar áskoranir í dag. Þarna kemur flækjustig þegar koma erlend ökutæki. Með erlend ökutæki er óljóst hvernig EES-reglur koma þessu. Það er mismunandi eftir því hvort þau muna að skrá kílómetragjaldið við komuna til Seyðisfjarðar eða ekki og í hve langan tíma þau eru. Þarna þarf tollurinn að fara að fylgjast með miklu meiri upplýsingum en áður.
Annað í þessu er að þetta hefur verið vandamál bara til dagsins í dag. Ef einhver fer með Tesluna sína með Norrænu og ferðast um Evrópu þá áttu að senda á [email protected] kílómetrastöðuna þína. Þau verða að láta löggilta skoðunarstofu lesa af þessu, sem er uppi á Egilsstöðum og er kannski ekki opin akkúrat þá og þú þarft að fara fimm tímum fyrr í ferjuna. Þetta er bara eitt pínulítið dæmi af þessu.
Á sama tíma og allt þetta flækjustig er að koma — þetta getur verið mjög flókið þegar eru að koma hingað erlendar ferðaþjónustur með rúturnar sínar, með ferðabílana, leiðsögubílana, eða mótorhjólin sérstaklega, í samkeppni við innlenda aðila — á að leggja vörugjöld á alla þessa ferðaþjónustu og allt þetta. Það er tvöfalt álag á atvinnulífið frá hæstv. ríkisstjórn í einu, þannig að út af þessu flækjustigi öllu saman er farið að tala um að flagga út ferðaþjónustufyrirtækin, hvort sem það eru leiðsögufyrirtæki og þau sem bjóða ferðir, safari-ferðir og annað, eða hjá bílaleigunum og annað slíkt. Það er verið að skerða samkeppnishæfnina svo mikið að það er verið að hrekja þau í burtu.
Það sem ég ætlaði líka að segja, af því að ég kom hérna inn á að það væri búið að vera þetta kerfi sem er nú við lýði í áratugi, er að það er svo margt annað sem hefur þróast miðað við það kerfi sem er ekki að aðlagast þessu nýja kerfi. Þar ætla ég að byrja á að nefna það sem er með litaðri olíu. Það er búið að búa til kerfi um hverjir megi vera á litaðri olíu og hverjir ekki og þannig hefur verið hægt að mæta þeim sem nota vegakerfið minna og eru þá oftast að vinna við framkvæmdir, bæði inni á lokuðum svæðum eða framkvæmdasvæðum. Nú mun það allt saman flækjast og þurfa að finna sér nýtt jafnvægi. Það getur leitt til hærri byggingarkostnaðar.
Annað sem við getum lært er að út af hinum ýmsu loftslagsmarkmiðum og umhverfissjónarmiðum hafa verið reglur hér um íblöndunarefni. Þegar er verið að bjóða út stórar framkvæmdir og annað slíkt þá þarf að vera visst mikil íblöndun í eldsneytið sem vinnuvélarnar og vörubílarnir og allt nýta. Það vill svo til að í dag kostar lítrinn af íblöndunarefni það sama og lítrinn af dísilolíu með bensín- og olíugjaldi en eftir það, ef olíu- og dísilgjaldinu væri breytt í kílómetragjald þá ertu farinn að borga fullt gjald fyrir íblöndunarefni, sama og dísillítrinn kostaði áður, og borga líka kílómetragjald af íblöndunarefnunum. Þetta hækkar byggingarkostnað, þetta hækkar gjöldin töluvert og dregur úr hvatanum til þess að hafa íblöndunarefnin í. Íblöndunarefnin eru oft hærra hlutfall í dag heldur en lög og reglur gera ráð fyrir. Það eru svo mörg svona kerfi einhvern veginn sem eru búin að aðlaga sig að því sem á við í dag.
En svo er nú einn punktur sem þetta kemur kannski ágætlega við. Þeir sem eru að nota ljósavélar og annað sem eru ekki einu sinni ökutæki, þeir borga nú olíu- og dísilgjald í dag, eru að borga fyrir notkun á vegakerfinu. Það mun náttúrlega ekki þurfa að gera lengur þannig að það er kannski einhver ljós punktur einhvers staðar í þessu, en hvað það er stórt hlutfall bara veit ég ekki.
Svo er annað sem ég hef mestu áhyggjurnar af í þessu öllu saman. Það er annað kerfi sem er búið að aðlaga sig að þessu og það er bara landsbyggðin og allir fólks- og þungaflutningar til og frá landsbyggðinni. Það vill nú þannig til að þó að meiri hluti landsmanna búi hér á milli Hvítánna þá fer rosalega mikið af verðmætasköpuninni fram úti um landið allt. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að halda byggð í þessu landi og flestar útflutningsgreinarnar okkar eru byggðar á framleiðslu úti á landi, hvort sem það er ferðaþjónustan þar sem er verið að nota náttúruna eða orkuöflunin, fiskurinn, laxeldið, landbúnaðurinn, álframleiðslan og lengi mætti telja, og stóriðjan. Þetta mun hækka flutningskostnað til og frá landsbyggðinni um allt að 10%. Það er ekki það sem landsbyggðin má við núna þegar það er hvert áfallið eftir annað í atvinnulífinu, samdráttur í atvinnulífinu og allar útflutningsgreinar eiga undir högg að sækja. Þannig er þetta landsbyggðarskattur. Þetta er landsbyggðarskattur á svo margan hátt. Þetta leggst á það. Þegar er verið að flytja nauðsynjavörur út á land þá hækkar flutningskostnaðurinn. Þegar verið er að flytja framleiðsluvörur frá landsbyggðinni til höfuðborgarinnar, hvort sem það er fiskurinn frá fiskvinnslunum eða hvort þetta ýtir undir að það verði hagkvæmara að landa hér nær útflutningshöfnunum, flugstöðinni í Keflavík og svo höfnunum í Þorlákshöfn og Sundahöfn, þegar er verið að framleiða landbúnaðarvörur úti á landi eins og Arna í Bolungarvík eða mjólkursamlagið á Sauðárkróki eða Akureyri, Egilsstöðum, Búðardal, frá kjötvinnslum úti á landi, steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki, svona mætti lengi telja — þetta hækkar þann kostnað gríðarlega.
Ég tala nú ekki um það hvernig þetta leggst svo á íþróttalífið, þess vegna hef ég nú bara kallað þetta barnaskatt, af því að börnin hringinn í kringum landið sem eru að ferðast um langan veg ítrekað til þess að taka þátt í íþróttakeppnum gera það meira og minna á bílaleigubílum. Nú fer að leggjast kílómetragjald ofan á það sem mun hækka verðið hjá þeim á sama tíma og þau fá á sig vörugjöld þannig að ferðakostnaður íþróttafélaganna, sem er mikið vandamál og núverandi ríkisstjórn viðurkennir að hún er að auka nokkrar krónur í ferðasjóð ÍSÍ þannig að það séu borgaðir 2/8 í staðinn fyrir 1/8 af kostnaðinum — kostnaðurinn hækkar þannig að þetta verður bara áfram 1/8. Þetta er ekki gott.
Ég er þá búinn að fara hérna yfir hvernig vöruverðið á landsbyggðinni hækkar, samkeppnishæfni útflutningsgreinanna til að vera úti á landi dregst saman, hvernig útflutningsgreinarnar á Íslandi yfirhöfuð missa samkeppnishæfni sína, sérstaklega ferðaþjónustan, og þetta er aukin óskilvirkni, eykur báknið. Fyrir allt þetta þá hef ég ekki enn þá skilið þennan ávinning sem kallar á það að hér komi frumvarp sem hefur komið þrisvar sinnum núna, þetta er þriðja skiptið, inn í þingið eftir að það var samþykkt á nýorkubílana. Alþingi hefur einu sinni vísað þessu frá, vísað þessu aftur til ríkisstjórnarinnar og sagt að þetta þurfi að skoða miklu betur og þetta sé ekki vilji Alþingis. Það var gert hér í lok síðasta kjörtímabils. Svo kemur þetta aftur á síðasta þingi og náði ekki fram að ganga og enn og aftur núna og alltaf fjölgar umsögnunum sem tala gegn gjaldinu, þeim fjölgar eftir því sem fólk kynnist þessu betur. Þar sem þetta er skoðað betur þá kemur í ljós að þetta er flóknara, þetta er vitlausara og þetta er óraunhæfara. Það kemur meira og meira í ljós. Það er enginn umsagnaraðili sem er að kalla á þetta. Það er einn umsagnaraðili sem hefur alveg lýst vilja til að fara af stað með veggjöld og hv. framsögumaður Pawel Bartoszek kom inn á það áðan, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, en þeir eru ekki hlynntir þessari útfærslu, bara langt því frá, telja að þessi útfærsla sé röng, ógagnsæ og ósanngjörn. Þeir hafa sína útfærslu á þessu þannig að það er enginn að tala fyrir þessu. Það er bara sagt að þetta sé til að mæta — að nota þau sem borga. Ég hef bent á að það sé gert nú þegar. Ég hef sagt það skýrt að í þessum skattafjárlögum sem eru núna þá er verið að auka gjöld á umferð fyrir hátt í 12 milljarða kr. og ekki ein króna af því fer í vegakerfið, þannig að Sjálfstæðisflokkurinn og við í minni hlutanum leggjum til að þessu máli verði vísað frá. Við höfum lagt til aðrar leiðir til að ná þessu, höfum rökstutt að það séu aðrar leiðir sem eru búnar að ná þessu markmiði og munum tala fyrir frekari leiðum til að þróa þetta í betri átt (Forseti hringir.) og leggjum til að þessu sé vísað frá.