157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Ég vildi kannski fá það á hreint, af því að í lokin á hans nefndaráliti er lagt til að frumvarpinu verði hafnað, en notað orðið frávísun, að hann komi kannski hér upp og skýri hver afstaðan er. Varðandi margt af því sem kemur hér fram er alveg rétt að ég hef svo sem ekkert verið að elta ólar við það hver það var sem kom upprunalega með hugmyndina, mér finnst það hálfpartinn aukaatriði. Það erum við sem erum hérna á þingi og erum núna í meiri hluta sem berum ábyrgð á því sem hér er samþykkt og það skorast enginn undan því. Hins vegar er það auðvitað rétt að kílómetragjaldið sjálft, kílómetragjaldið sem lagt var á rafmagnsbíla, var samþykkt í tíð síðustu ríkisstjórnar. Mig langar að fá raunverulegt mat þingmannsins á því, hvort hann telji að það kerfi sé bara mjög flókið, erfitt í framkvæmd, hafi reynst illa og hvort hann telji að það hafi verið mistök að koma því á og hvort það hefði átt að fara einhverjar aðrar leiðir í því.

Mig langar að bregðast við nokkrum öðrum atriðum sem þingmaður nefndi. Hann nefndi hvernig t.d. kerfi litaðrar olíu hefur verið nýtt til þess að innheimta minna gjald af þeim sem nota vegina minna. Ég held raunverulega að ef það kerfi væri ekki til í dag og einhver myndi leggja það til þá myndi bara áramótaskaupið og skopmyndateiknarar þessa lands eiga glaðan dag við að gera grín að því. Þetta er auðvitað dálítið kjánalegt fyrirkomulag, að það sé hellt einhverri málningu eða litarefni í olíu og svo fara opinberir starfsmenn um og skoða í tankana hjá fólki hvort einhver sé að keyra á þessu. Það væri alveg hægt að draga þetta sundur og saman í háði líka.

Að lokum þá vil ég segja að þetta sem þingmaðurinn nefnir varðandi kostnað fyrir landsbyggðina að það er samt þannig í kerfinu í dag að ef dæmigerður kjósandi í Reykjavík norður keyrir til Akureyrar, segjum, á litla smábílnum sínum þá borgar hann þrisvar sinnum minna í opinber gjöld heldur en einhver sem býr á landsbyggðinni og er á jeppa sem brennir þrisvar sinnum meira. Mér finnst það heldur ekki sanngjarnara (Forseti hringir.) heldur en það kerfi sem við leggjum til. Finnst þingmanninum sanngjarnara (Forseti hringir.) að íbúi landsbyggðarinnar sem keyrir um á stærri bíl borgi þrefalt meira fyrir þá ferð í opinber gjöld fyrir þá ferð heldur en íbúi sem keyrir á minni bíl?

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmann að virða ræðutímann sem er tvær mínútur.)