kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það hvort málinu verði vísað frá eða hafnað er ekki aðalatriðið, aðalatriðið er að það komi helst ekki hér til atkvæðagreiðslu af því að ef það fer í atkvæðagreiðslu, sem er eina leiðin til þess að því verði hafnað, þá á ég ekki von á því að núverandi ríkisstjórn fari að hafna því. Ég hugsa að helsta leiðin væri að við sammæltumst hér um að þetta mál færi bara ekkert lengra, það væri nú lokaniðurstaðan hér.
Voru mistök að setja núverandi kílómetragjaldskerfi á hjá rafmagnsbílunum? Ég kom inn á það í ræðu minni að ég hefði kosið að það hefði verið farið að vilja þingsins af fyrrverandi samgönguyfirvöldum, fyrri ríkisstjórn, að setja veggjöldin á 2019. Ég hef lengi lýst yfir óánægju minni með að það náði ekki fram að ganga. En fyrst það var ekki komið í framkvæmd og meðan það var ekki komið í framkvæmd þá taldi ég það alveg vera tilraunarinnar virði þar sem þetta var mjög afmarkað mengi af ökutækjum sem myndi fara að greiða þetta gjald. Það væri þá hægt að prófa þetta kerfi, það væri hægt að fá einhverjar tekjur á meðan en langtímasjónarmiðið hjá mér var áfram að veggjöldin myndu koma inn. Veggjöldin eru líka miklu þekktari í allri Evrópu og öllum löndunum sem við berum okkur saman við og við erum að fá gesti frá og annað slíkt. Þangað til það væri komið á þá taldi ég allt í lagi að þetta kílómetrakerfi kæmi og tel að það hafi ekki verið mistök af því að nú fáum við tekjur af því á hverju ári meðan hitt er ekki komið á.
Ég bara bendi á það að litaða kerfið kom af því að kílómetrakerfið var svo flókið og annað, þannig að það kom á eftir því. Það er staðgengilsvara og ég get alveg tekið undir það að það er ekki einföldun að hafa slíkt kerfi en það er alla vega viðleitni (Forseti hringir.) til þess að mæta þeirri atvinnustarfsemi sem er ekki að nota vegina.