157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans svör. Ég spurði hann nú að svo mörgu að honum gafst ekki tími til að svara öllu því sem ég spurði, t.d. hvort honum þætti það sanngjarnt að íbúar landsbyggðarinnar, sem að meðaltali keyra um á þyngri og eyðslumeiri bílum heldur en íbúar á höfuðborgarsvæðinu, greiði tvöfalt, þrefalt meira í opinber gjöld fyrir sín ferðalög en íbúar höfuðborgarsvæðisins eins og staðan er í dag. Mig langaði að spyrja að því. En af því að þingmaðurinn nefnir veggjöld þá hef ég alveg sagt það að ég er enginn andstæðingur veggjalda. Ég gæti alveg hugsað mér að koma á veggjöldum og ég á ekki erfitt með að taka ákvarðanir sem kunna að vera erfiðar og umdeildar. Hins vegar vil ég auðvitað benda á það, af því að þingmaðurinn nefnir andstöðu við þetta frumvarp, að árið 2011 safnaði Félag íslenskra bifreiðaeigenda 41.000 undirskriftum gegn veggjöldum. Ég hef ekki séð að andstaðan við þau hafi eitthvað minnkað síðan. Félag íslenskra bifreiðaeigenda lét líka framkvæma könnun hjá MMR um afstöðu fólks til veggjalda og þá kom í ljós að 81,9% þeirra sem afstöðu tóku í þeirri könnun voru á móti veggjöldum. Þannig að ef hér er verið að leggja til, í staðinn fyrir þetta kerfi, að búa til eitthvert annað fjármögnunarkerfi, sem ég er í grunninn ekkert endilega á móti sem hugmyndafræði, þá verða menn samt að gera sér grein fyrir því að þeir eru að mæla með kerfi sem er á allan hátt miklu óvinsælla hjá almenningi samkvæmt öllum mælingum heldur en það sé verið að leggja hér til.