157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:26]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessar tvær góðu spurningar. Það er nefnilega þannig að í dag borga íbúar höfuðborgarsvæðisins meira í opinber gjöld af notkun vegakerfisins þar sem þeir keyra mikið meira. Það hefur nú verið helsta afsökun stjórnvalda um að þetta sé ekki landsbyggðarskattur af því að vegalengdirnar sem eru keyrðar í dag, þeir sem borga bensín- og olíugjöldin, eru langmestar hér á suðvesturhorninu, voru langmestar að vísu í mínum heimabæ, Grindavík, þannig að við borguðum mest í kerfinu eins og það er í dag svo að það sé á hreinu. Þannig að þessi rök hv. þingmanns eiga ekki við.

En svo er þetta varðandi erfiðar og umdeildar ákvarðanir. Ég er alveg til í þær og þess vegna er ég að berjast fyrir veggjöldunum og það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þau hafa verið mjög umdeild. Það voru 75% landsmanna sem ætluðu aldrei að keyra í gegnum Hvalfjarðargöngin, voru á móti því. En þar var eitthvert augljóst markmið, annaðhvort kæmu göngin eða ekki. Það þurfti að taka af skarið. Það var gert og enginn var á móti því á eftir og allar mælingar hafa sýnt, eftir að Hvalfjarðargöngin voru gerð, og svo frá þessari undirskriftasöfnun 2011 og frá umræðunni okkar 2019, að stuðningur við veggjöld hefur verið aukast jafnt og þétt af því að þar sér fólk einhvern tilgang. Það sér hinn augljósa tilgang. Peningurinn fer beint í vegaframkvæmdirnar. Þetta flýtir framkvæmdunum og þetta er leið sem önnur lönd hafa ákveðið að fara. Hún hefur virkað á Íslandi, virkaði í Hvalfirði. En það er ekki það sem við höfum séð varðandi kílómetragjaldið. Við höfum gefist upp á því einu sinni og við höfum tekið það upp hjá rafmagnsbílunum og þar sjáum við enn þá flækjustigið þrátt fyrir fjórar umræður hér og þriggja ára reynslu. (Forseti hringir.) Það hefur ekki enn þá tekist að koma í veg fyrir það flækjustig og rugl.