kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir prýðisræðu og ég vil byrja á að segja það að ég styð þetta nefndarálit. Þetta er gott nefndarálit og auðvitað á að vísa þessu máli frá út frá öllu því sem fram hefur komið og í ljós hefur komið, væri réttara að segja. Mig langaði aðeins til að blanda mér inn í umræðuna um veggjöld, þeir borga sem nota. Ef ég ætti að giska þá myndi ég telja að ástæðan fyrir andstöðunni að mestu leyti væri sú að almenningur treystir því ekki að þetta verði ekki bara viðbótarskattur. Við erum með kerfi sem byggir ekki á veggjöldum en byggir reyndar á því að þeir borga sem nota af því við höfum dælu, þeir sem keyra meira borga meiri skatta í gegnum dæluna. Hins vegar eru veggjöldin þannig að ríkisstjórn eins og sú sem nú situr, skattastjórn, myndi bara bæta þessu við, ég bara fullyrði það, miðað við það sem við erum búin að sjá núna. Hún myndi ekki taka í burtu aðra skatta. Það er vandamálið. Þess vegna langar mig að spyrja í fyrsta lagi: Telur hv. þingmaður að það geti verið skýringin að einhverju leyti?
Svo langar mig til að fara aðeins yfir í þessa landsbyggðarskatta. Nú hef ég heyrt því fleygt hér að þetta sé ekki landsbyggðarskattur, þetta hækki ekki vöruverð vegna þess að úti á landi séu svo margar keðjur sem eru líka í bænum; Krónan, Bónus, Rúmfatalagerinn, eins og það sé afmarkað, og þar sé sama verð. Bíðum nú við, hv. þingmaður, það borgar alltaf einhver á endanum, neytendur borga á endanum. Og hvort sem landsbyggðin borgar meira eða ekki þá borgum við líka meira á höfuðborgarsvæðinu ef við erum að tala um þá liði, en það er bara fullt af öðrum vörum sem þarf að flytja út á land sem eru ekki hjá þessum stóru keðjum. Þannig að spurning mín til hv. þingmanns er: Endar þetta ekki allt á neytendum?