157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:31]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar góðu spurningar og tek undir einmitt það sem fram kom í fyrri spurningunni, vantraust varðandi það að skattar af umferð séu almennt notaðir í vegakerfið. Það á ekki að gera lítið úr því að slíkt vantraust er til staðar. Í dag erum við með hið almenna tekjuöflunarkerfi sem fer ekki beint í vegakerfið heldur fara sértæku gjöldin beint í vegakerfið en þarna er bara vantraust. Svo er vantraust þegar það kemur svona skattastjórn eins og núna sem fer bara dýpra og dýpra í vasa landsmanna og sýnir það svo bæði í fjármálaáætlun og í fjárlögunum að skattarnir fara ekki í vegakerfið. Auðvitað eykst þá vantraustið enn frekar og andstaðan. Og þau bara bæta við sköttum. Ég hafði smá áhyggjur af því varðandi kílómetragjaldið að þegar það eru svona margar dælur þá væri erfitt að fylgjast með því hvort söluaðilar eldsneytis skiluðu allri lækkuninni á olíu- og dísilgjaldinu. En ég hef bara miklu meiri áhyggjur af stjórnvöldum núna, að þau nýti þetta tækifæri til að hækka kolefnisskattana enn þá meira eða nýti það svigrúm sem myndast þarna, með almennu vörugjöldin eða eitthvað, þau finni sér einhverja leið til þess að ná því til baka. En það er algerlega borðleggjandi miðað við allar umsagnir og öll rök að það verður mikill þrýstingur á hækkun vöruverðs. Þegar við erum að tala um vörur úti á landi þá erum við ekki bara að tala um það sem er selt í Bónus. Við erum að tala um alla varahluti, öll aðföngin og byggingarvörurnar og framleiðslukostnaðinn og lengi mætti telja. Það er ekki bara búðin á staðnum sem er eina vörusalan (Forseti hringir.) á hverjum stað fyrir sig.