kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns þess efnis að þetta gefi ríkisstjórn eins og nú situr tækifæri til að hækka enn meira. Allt í einu er lægra verð á dælunni og þá sjá þau tækifæri vegna þess að það er yfirlýst markmið, yfirlýstur tilgangur hjá alla vega hluta þingmanna meiri hlutans, að skattleggja bifreiðaeigendur sem mest. Af hverju? Við sitjum uppi með ríkisstjórn þar sem eru sömu flokkar og í borginni og við höfum séð áhuga þeirra á að skattleggja bíla og gera bifreiðaeigendum erfiðara fyrir. Sumir hv. þingmenn fela það ekki, aðrir fela það með því að taka upp mál sem náði ekki framgangi á síðasta þingi af því að það er gallað.
Seinni spurningin sem ég hef er m.a. um hversu óskýr skattheimta þetta er. Það kom fram í umsögn Viðskiptaráðs að þetta er verulega óskýr skattheimta. Mig langar til að benda á að þó að við séum oft að tala um trukka, tengivagna, alls konar hluti varðandi þetta frumvarp, þá er það af því að það er flækjustigið. En ég vil bara að það sé alveg á hreinu að þetta lendir á öllum almenningi, öllum bifreiðaeigendum. Þetta eru yfir 300.000 bifreiðar sem eru að fara að bera aukna skattbyrði. Þetta mun einnig vera erfitt, til að mynda þá ferðu á dæluna og borgar þar, svo borgar þú aftur mánaðarreikninginn. Kerfin verða ekki tilbúin í þetta, almenningur verður ekki tilbúinn í þetta 1. janúar. Þannig að í seinni spurningu þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Sér hann einhvern séns í raunheimum á að fyrirtæki og almenningur og stjórnsýslan geti verið tilbúin í þessa löggjöf 1. janúar 2026? Það er eftir nokkra daga.