157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:35]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Því er auðsvarað, það er ekki nokkur fræðilegur möguleiki á að einhver geti verið búinn að undirbúa sig fyrir þessa skattheimtu 1. janúar næstkomandi. Hér erum við að tala um mál sem er að koma í þriðja sinn til Alþingis. Í hin tvö skiptin hefur ekki tekist að klára það. Í vor voru lagðar til fullt af breytingartillögum sem var tekið mið af við framlagningu frumvarpsins núna en samt erum við með röð af tæknilegum breytingum núna. Það er algerlega ómögulegt að segja forritaranum hvernig tölvukerfin eigi að vera forrituð af því að málið hefur stoppað hér tvisvar sinnum áður og það eru endalausar breytingar þannig að það er ekki hægt að verja sig fyrir þessu með að selja þetta fyrir fram, bæði af því að málið hefur stoppað áður og hlutföllin eru búin að breytast. Bara frá því í vor er búið að hækka gjaldið. Það er búið að hækka gjaldið. Nú erum við með ríkisstjórn sem er löngu sprungin á stöðugleikareglunni sinni, skattareglunni, og maður veit aldrei hvað þeim dettur í hug milli umræðna, hvort þau hækki gjaldið eða breyti því af því að þau eru ekki að fá vörugjöldin eða neitt inn sem þau gera ráð fyrir. Að sjálfsögðu er ekki hægt í þessari skrýtnu og flóknu gjaldheimtu — við erum að tala hér um mótorhjól og fornbíla og mismunandi stóra vörubíla og svo nær kílómetragjaldið bara upp í 44 tonn en margir bílar eru 49 tonn og svo eru rafmagnsbílar og ekki rafmagnsbílar, þetta eru, eins og ég sagði áðan, 29 gjaldflokkar og margir sem hafa verið vanir öðru kerfi eru búnir að gera útboð og annað miðað við annað kerfi. Maður þyrfti að fá tvöfaldan ræðutíma eins og í fjárlögunum til að fara yfir flækjustigið í þessu, virðulegi forseti.