kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti sem inniheldur frávísunartillögu frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Álitið er ekki mjög langt þannig að ég ætla að fá að lesa upp þetta minnihlutaálit, með leyfi forseta:
„Eftir þinglega meðferð þessa máls er fyrirséð að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum leiðir það til mikils óhagræðis. Kerfið verður gríðarlega þungt í vöfum og aukinn kostnaður kemur hart niður á stjórnvöldum, fyrirtækjum og heimilum. Í engu öðru landi hefur áþekkt kílómetragjald verið innleitt vegna þess flækjustigs sem slíku kerfi fylgir og vegna ýmissa annmarka sem tilgreindir eru í umsögnum um málið. Ekki hefur verið talið forsvaranlegt að ráðast í slíka vegferð til þessa. Í þeim löndum þar sem ráðgert er að innleiða kílómetragjald á bifreiðar er stefnt að því að gera það eftir nokkur ár og á nokkurra ára tímabili. Þannig verður skapaður fyrirsjáanleiki sem skiptir miklu máli fyrir heimili og sérstaklega fyrir fyrirtæki. Þá er oftast horft til þess að innleiða einungis slíkt gjald á rafmagnsbifreiðar.“
Ég ætla aðeins að vera með innskot um þetta, frú forseti. Það bárust fréttir af því um daginn að Bretland væri að skoða að leggja á kílómetragjald. Staðreyndin er hins vegar sú að þeir eru að skoða að gera það eftir nokkur ár og, eins og ég sagði áðan, yfir nokkurra ára tímabil. En hvað ætla þeir að gera? Bara á rafmagnsbifreiðar. Við erum komin þangað. Þeir ætla bara að gera það á rafmagnsbifreiðar.
„Kílómetragjald á rafmagnsbifreiðar hefur nú þegar verið innleitt á Íslandi. Óþarfi er að umbylta kerfi sem virkar vel þegar fyrirséð er að nýtt kerfi hefur gríðarlega neikvæð áhrif um land allt eins og fjöldi umsagnaraðila hefur bent á. Skynsamlegra væri að leyfa núverandi fyrirkomulagi olíu- og bensíngjalda, sem áralöng reynsla hefur fengist af, að renna sitt skeið. Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði afar íþyngjandi og flókin kerfisbreyting. Einnig er vert að benda á að gildistaka laganna er mjög skammt undan, 1. janúar 2026.“
Það er eftir nokkra daga og jólin og áramótin koma þar inn á milli. Þannig að ekki eru margir dagar fyrir fyrirtæki til að undirbúa sig.
„Í ljósi þess að enn á eftir að greiða úr mörgum vafaatriðum er málið ekki tækt til afgreiðslu. Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.“
Þannig að það verði tekið hér af dagskrá og vísað til baka. Ef meiri hluti verður hér í þingsalnum fyrir því að fella þessa tillögu þá erum við með varatillögu sem er eftirfarandi:
„Um er að ræða umfangsmikla kerfisbreytingu frá því sem verið hefur sem stjórnvöld, einstaklingar og fyrirtæki þurfa að undirbúa. Flækjustig er hátt og því þarf að veita hæfilegt svigrúm til að greiða megi úr þeim vanda sem uppi kann að verða svo að hægt sé að framfylgja lögunum.“
Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að við getum framfylgt lögum sem við setjum hér á Alþingi.
„Óraunhæft er með öllu að lögin taki gildi 1. janúar 2026. Í því ljósi leggur 2. minni hluti til að lögin taki gildi 1. janúar 2027.“
Þetta er einungis varatillaga ef sú fyrri verður felld.
Þá hef ég mælt fyrir þessu nefndaráliti og gert grein fyrir því. Mig langar því til stuðnings að ræða aðeins fleiri atriði varðandi þetta frumvarp. Vandamálin sem við stöndum hér frammi fyrir þessu þingi eru, held ég, á stóran hátt það sem gerðist hér í sumar: Hæstv. forseti Alþingis ákvað að beita þingskapalögum með þeim hætti sem fyrri forsetar hafa ekki viljað gera nema í algjörum neyðartilfellum, til að stöðva umræðu. Það kom berlega í ljós að þetta lá fyrir vegna þess að hér töluðum við og bentum á staðreynd eftir staðreynd um hversu gallað þetta frumvarp sem við ræddum var. Það sneri ekki að því að fólk vildi ekki ræða það og gera breytingar og bæta. Nei, við bentum á gallana og í nánast engu, í marga daga og vikur, komu hv. þingmenn úr meiri hlutanum til að ræða þessi mál. Af hverju? Jú, því það átti að stöðva umræðuna. Af hverju er það svona slæmt? Það er af því að það er að koma í ljós að hv. þingmenn meiri hlutans virðast treysta því að þeir þurfi ekki að tala fyrir sínum málum.
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að næstu daga verði hér þingmenn sem koma í byrjun umræðunnar — alveg sama hvað mun koma í ljós hér í umræðunni þá verða þeir horfnir að kaupa jólagjafir eða gera eitthvað annað. Í vinnu efnahags- og viðskiptanefndar, sem hefur verið með ágætum, hefur komið umsögn eftir umsögn til að benda á gallana en áfram skyldi keyrt, alveg sama hvað kemur í ljós. Þessi ríkisstjórn gerir það að sínu pólitíska máli að keyra þetta áfram, mál sem er að koma inn í þriðja eða fjórða skiptið. Þetta er þeirra pólitíska mál að keyra þetta í gegn. Svíkja kosningaloforðin um að hækka ekki skatta á almenning. Þetta er málið sem þau eru tilbúin að svíkja kosningaloforðin fyrir og hækka skatta. Það byrjaði reyndar þannig að þetta var kynnt fyrir okkur sem eitthvað hlutlaust, það ætti bara að jafna leikinn. Og hvernig var það? Jú, til framtíðar myndi það skila meiri tekjum. Nú er komið í ljós að þetta er skattahækkun strax á næsta ári á almenning. Það er verið að svíkja kosningaloforðin. En fyrir hvað? Jú, stór hluti af þessu fer í kostnað við kerfið sjálft. Stærra bákn. Það var líka kosningaloforð að taka til. Þetta er stærra bákn, fleiri embættismenn, flóknara kerfi. Þetta er það sem verið er að bjóða upp á. Ég var svo einföld í byrjun að halda að hv. þingmenn meiri hlutans vildu þetta ekki sjálfir, þetta kæmi á færibandinu frá ráðuneytinu og þeir væru að koma sér inn í málið. Nei, þeir eru að leggja þetta aftur fram. Málið er orðið verra en það var.
Við erum með kerfi sem er að virka. Við erum með kerfi sem mun bara leysa flest allt sem þau segja að sé tilgangurinn með þessu kerfi. Þeir borga sem nota, það er nokkurn veginn þannig. Stærri bílarnir borga meira á dælunni, trukkarnir borga mun meira. Rafmagnsbifreiðar eru komnar með kílómetragjöld, þær borga, en það var flokkur sem þetta virðist allt snúast um: Það var heimilisbíllinn. Það var sparneytni, litli heimilisbíllinn. Venjuleg bifreið var ekki að borga nóg. Frumvarpið gengur út á það að reyna að fá eigendur tengiltvinnbílanna, vinsælustu bílanna, til að borga meira. Samt eru þeir bílar að hluta til komnir inn í skattamengi með rafmagnsbifreiðum. Allt þetta flækjustig virðist vera til þess að eigendur tengiltvinnbíla borgi meira. Og þá velti ég fyrir mér: Er það svo mikilvægt, á sama tíma og við erum að eyða einhverjum skrilljónum, mörgum milljörðum, í loftslagsskatta og loftslagssektir, að við þurfum að refsa þeim sem eru að taka þátt í þeirri vegferð og eru á neyslugrennri bílum? Er það raunverulega það sem við hv. þingmenn viljum gera? Væri ekki nær að taka eitthvað af þeim peningum sem er verið að setja í loftslagsmál og setja í vegakerfið? Við getum örugglega hakað við loftslagstengt málefni þannig, alveg án efa. Þetta er alveg ótrúlegt.
Ég sé hér hv. þingmenn sem eru með mér í efnahags- og viðskiptanefnd. Það minnir mig á eitt mál: Bílar sem fara með Norrænu. Ég hafði svolitlar áhyggjur af því að þeir myndu kannski þurfa að borga meira. Þeir þyrftu að borga bæði í Evrópu — færu kannski með bílana út, keyrðu þá 3.000 km, færu út í Danmörku, færu til Þýskalands og keyrðu jafnvel um allt Evrópusamband meiri hlutans og kæmu svo til baka og þyrftu líka að borga hér. En nei, það er sem betur fer varnagli. Þú getur einhvern veginn í þessu flókna kerfi sótt um að borga ekki tvöfalt. Það er nefnilega vandinn. Þetta er svo flókið kerfi. Þá ferð þú og þarft að fylla út einhverja pappíra, gera grein fyrir þessum 3.000 km þannig að þeir verði ekki innheimtir eftir tvö ár þegar þú mætir í skoðun. Ég veit ekki hvort margir muni nenna að standa í þessu en þetta á að vera einhver möguleiki. Svona er flækjustigið, það er alls staðar. Þú ferð á dæluna, tekur bensín á bílinn, lánar kannski barninu þínu bílinn. Það vill skila bílnum fullum og gerir vel. Þú ert reyndar að borga fyrir aksturinn í næsta mánuði, kílómetragjaldið. Eða þeir sem eru að reyna að kaupa eyðslugrennri bíla, fara á dæluna með þann pening sem er til — og hvað gerist? Næsta mánuðinn ert þú rukkaður aftur fyrir þessa kílómetra sem þú ert búinn að vera að borga. Er ekki augljóst að þetta er allt of mikið flækjustig?
Svo erum við með bílaleigurnar undir. Það á aldeilis að slátra þeim. Það má líka segja að ríkisstjórnin hafi verið heiðarleg, henni er ekkert sérstaklega vel við ferðaþjónustuna. Hún mátti bjarga okkur á sínum tíma þegar það vantaði útflutningstekjur, þegar það vantaði einhverjar meiri tekjur í kassann, en núna á allt að snúast um það að fá annars konar tekjur, verðmæti frá öðrum greinum. Ég get tekið undir að við viljum alveg án efa fá sem mestar tekjur frá öðruvísi störfum líka. En þurfum við að eyðileggja ferðaþjónustuna til þess? Á sama tíma kemur fram í fjárlögum að það á að draga úr útgjöldum í þann málaflokk sem þau segjast ætla að styðja við. Hljóð og mynd, eins og svo oft áður, fer ekki saman. Eftir nokkra daga á þessi skattur að koma á bílaleigur. Þær eru auðvitað búnar að selja meira og minna allt fyrir næsta sumar. Hvernig eiga þær að standa undir þessum auknu sköttum? Við erum að tala um grein sem er nýkomin út úr Covid, það var fall flugfélags Wow air og nú er það fall Play; hvert áfallið á fætur öðru hefur dunið yfir þessa grein. Þetta er það sem ríkisstjórnin ákveður að gera, eyðileggja þetta endanlega. Á sama tíma — það er varla hægt að ræða þetta í sitt hvoru lagi — á að auka vörugjöld á bifreiðar. 7,5 milljarðar í vörugjöld. Þar voru kosningaloforðin svikin aftur. Þar voru 7,5 milljarðar.
Við vorum að ræða það að bílaleigur sem eru búnar að selja fram í tímann — mér þætti ágætt að heyra í stjórnarliðum hvernig þau ætla að réttlæta það að þetta þurfi bílaleigurnar að taka á sig. Ekki nóg með það að þær þurfi að taka á sig þennan kostnað. Nei, þær eru að innheimta gjöld fyrir ríkið og það kostar t.d. í kortafærslum, þar eru tugir milljóna í viðbót. Eða vill ríkisstjórnin að þessar bílaleigur fari í herferð og reyni að auglýsa það að nú sé bensínlítrinn á dælunni ódýr þannig það sé allt í lagi að borga meira fyrir bílaleigubíla á Íslandi en í samkeppnislöndum okkar, af því að við erum svo ódýr á dælunni? Vandamálið er að það er ekkert ódýrt á dælunni heldur, fyrir utan það að það er algerlega óraunhæft að reyna að útskýra það fyrir ferðamönnum sem eru að skoða misjafna möguleika, hvert þeir eigi að koma. Það er vandamál sem við stöndum frammi fyrir ef það væri fyrirsjáanleiki. Nú er enginn fyrirsjáanleiki. Nú er verið að innheimta þessi gjöld eftir nokkra daga á aðila sem eru búnir að selja sína þjónustu fram í tímann. Þetta veit ríkisstjórnin en hún heldur samt áfram. Ég ætla að fara aðeins betur yfir bílaleigurnar á eftir.
Svo langaði mig að taka aftur upp vinkilinn á landsbyggðina. Við ræddum það aðeins áðan, ég og hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Því er ítrekað haldið fram að þetta sé enginn landsbyggðarskattur. Vissulega er þetta skattur á höfuðborgina líka, það er alveg á hreinu. Ég neita því ekki, þetta er mikill skattur á höfuðborgina. En allar þær vörur sem fluttar eru út á land munu hækka. Þau rök að það sé sama verð ef fólk er að versla í Bónus, Krónunni, Bauhaus eða Jysk, verslunum sem eru sums staðar úti á landi — það eru fleiri bæir en bara Reykjavík og Akureyri. Þessar búðir eru ekki alls staðar. En gefum okkur matarkörfuna. Ef sama verð er á Ísafirði og er í Reykjavík eftir þessa breytingu, sem ég gef mér að verði eins og hefur verið, þá er það auðvitað bara hækkun á alla. Einhver borgar fyrir þetta. Ef það er dýrara að flytja vöruna borgar einhver fyrir það. Ég get upplýst um það að það eru neytendur sem borga á endanum. Það er enginn annar sem borgar þetta en neytendur, fólkið í landinu, almenningur sem átti ekki að hækka skatta á. Það er fólkið sem er að fara borga þetta.
Það er ekki bara matarkarfan sem hækkar, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason benti á áðan í fyrirspurn minni til hans. Það er alveg sama hvað það er; það eru varahlutir, það eru — bara nefndu það sem þarf að flytja. Það er fullt af bæjum úti á landsbyggðinni sem hafa ekki þessa stóru verslunarkjarna. Ætlar einhver að halda því fram að verð þangað hækki ekki? Við getum alla vega reynt að vera heiðarleg í þessum skattahækkunum. Það má kannski segja að með ákveðnum hætti sé ríkisstjórnin að verða það með því að tala alla vega hreinskiptið um að hún vilji hækka skatta á bifreiðar. En á meðan það eru ekki aðrar lausnir þá er þetta mjög undarlegt. Hvernig á að flytja vörur út á land? Á að taka strandsiglingar upp aftur, fara tvisvar í viku með vörur? Því var reyndar lofað þegar strandsiglingar voru afnumdar, og lá fyrir að trukkarnir færu á veginn, að það myndi ekki hækka verð. Það vissu allir að það myndi ekki standast, enda er krafan núna um miklu meiri hraða. Ég veit ekki hver viðbrögðin eru. Ég efast um að þessi ríkisstjórn ætli að fara að fljúga með vörurnar. Þetta frumvarp nær reyndar yfir marga þætti sem fólk kannski óraði ekki fyrir, skipin líka. Dæmi um þetta er að Landhelgisgæslan er farin að taka olíu í Færeyjum af því að þeir eru ekki svona skattaglaðir á olíuna sína þar. Mig grunar að hv. þingmenn vilji ræða þetta eitthvað en ég bendi bara á umsögnina frá vinum þeirra í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar er gerð góð grein fyrir áhrifum kílómetragjaldsins á þá. Ég ætla ekkert að staldra við það meira því mig langar mjög mikið til að gefa umsagnaraðilum orðið í þessari ræðu.
Mín upplifun er sú að það sé búið að flækja umræðuna svo mikið og það sé ekki tekið nægilegt tillit til gagnrýni. Ég vil bara upplýsa fólk um hvað raunverulega er verið að benda á. En áður en ég geri það þá langar mig líka að minnast á að það er algerlega vikið frá grundvallarsjónarmiðum um skattheimtu í þessu vegna þess að óskýrleikinn er með þeim hætti að það er ekki bjóðandi. Kannski að ég byrji á að lesa beint upp úr umsögn frá Bílaleigu Akureyrar. Það er alveg gríðarlega góð umsögn, eins og margar, og gerir vel grein fyrir þessu máli. Ég vil líka vekja athygli þeirra sem heima sitja á að skoða þessar umsagnir. Ef þú skoðar þessar umsagnir þá er með ólíkindum að það eigi að keyra þetta mál í gegn og með miklum ólíkindum að það eigi að svíkja kosningaloforð. Þetta eru þrír komma eitthvað milljarðar af aukinni skattheimtu á einstaklinga en í raun og veru er þetta auðvitað miklu meiri skattheimta því þetta hefur svo mikið af neikvæðum hliðaráhrifum. Þetta hefur áhrif á það hvernig ferðamenn dreifast um landið. Þetta hefur auðvitað áhrif á kauphegðun, þetta hefur áhrif á svo margt. Þess vegna skil ég ekki af hverju ríkisstjórnin ákvað ekki bara að auka útgjöld um 140 milljarða í staðinn fyrir 143 milljarða og sleppa því að hækka skatta á almenning í gegnum þetta frumvarp. Ég held að það hefði átt að duga þeim að auka bara útgjöldin, myndi ég segja, um 110 milljarða til þess að hætta algjörlega við allar skattahækkanir. 110 milljarða aukning á útgjöldum er sturlun milli ára en ef þau hefðu gert það þá hefðu þau ekki þurft að svíkja loforðin sín um að hækka ekki skatta. En, nei, þau þurftu að hækka útgjöld um 143 milljarða. Fyrir hvað? Ekkert áþreifanlegt, bara aðeins aukið kerfi hér og þar. Ekkert að taka til, það hefur ekki komið til tals. Innviðirnir — það á aðallega að byggja upp vegakerfið af næstu ríkisstjórn.
Núna fer ég aðeins um víðan völl en ég ætlaði að fara lesa hér beint upp úr umsögn frá Bílaleigu Akureyrar, með leyfi forseta, undir yfirskriftinni Umsögn um kílómetragjald og skort á aðlögunartíma:
„Íslensk stjórnvöld hyggjast einnig innleiða kílómetragjald á alla bíla – fyrst allra þjóða.“
Af hverju hafa ekki aðrir gert þetta? Haldið þið að þeir hafi ekki fattað það? Jú, það eru flestöll lönd búin að skoða þetta en þetta er svo tæknilega flókið að það er ekki talið forsvaranlegt.
„Þessi nýja gjaldtaka mun auka kostnað verulega og er kynnt með afar stuttum fyrirvara. Í samanburði má nefna að Holland og Sviss eru að skoða sambærilegt gjald þó ekki sé búið að ákveða neitt enn þá, en horfa til ársins 2030. Við höfum þegar verðlagt þjónustu okkar og hafið sölu fyrir næsta sumar. Breytingar með skömmum fyrirvara valda miklum vandræðum og hafa alvarleg áhrif á rekstur og traust viðskiptavina. Tal um fyrirsjáanleika þar sem umrætt gjald hafi þegar verið komið til umræðu fyrr á árinu er marklaust“ — ég hef heyrt þessu fleygt fram, af því að það hafi verið búið að tala um þetta þá geti fólk undirbúið sig, en auðvitað er þetta marklaust — „því við getum ekki kynnt eða upplýst viðskiptavini okkar um neitt fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir og hefur verið samþykkt á Alþingi. Þýskur ferðaheildsali orðaði þetta mjög „röggsamlega“ í mín eyru: „Ef stjórnvöld á Íslandi kjósa að verðleggja landið ofar öllum öðrum þá er það þeirra val, en reynið ekki að rukka okkur fyrr en þið hafið gefið okkur a.m.k. 12 mánuði til að kynna fyrir okkar viðskiptavinum. Við samþykkjum enga eftir á reikninga.““
Ég vil taka fram að undir þessa umsögn ritar Steingrímur Birgisson. Ég held að hann sé forstjóri félagsins.
Þetta er Bílaleiga Akureyrar og ég held áfram, með leyfi forseta, með það sem segir um áhrif á landsbyggðina og árstíðasveiflur:
„Um 60% ferðamanna leigja bíl og ferðast um landið. Umrætt gjald (ca. 8-12 evrur eftir gengi og akstri) leggst beint ofan á leiguverðið til viðskiptavina og hækkar vetrarverðin hlutfallslega meira en sumarverðin því þá eru útleiguverðin lægri. Það segir sig sjálft að ef verð hækkar jafn mikið og raun ber vitni þá minnkar eftirspurnin og mun færri ferðamenn leggja til landsins og enn færri leggja í hringferð.“ — Þeir dreifast sem sagt minna um landið. — „Þetta nýja gjald mun því bitna mest á landsbyggðinni og auka árstíðasveiflur sem greinin hefur reynt að draga úr í áratugi. Við sjáum nú þegar fækkun ferðamanna á ákveðnum svæðum og yfir vetrartímann er staðan verri.“
Ég ætla aðeins að staldra við. Þetta er alveg kýrskýrt. Enn og aftur er þessi ríkisstjórn með einhverjar árásir á landsbyggðina. Hvert frumvarpið á fætur öðru snýr að því að hækka álögur á landsbyggðina og gera landsbyggðinni einhvern veginn erfiðara fyrir. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Bílaleigur gegna lykilhlutverki í að dreifa álagi vegna ferðamanna um landið og tryggja að ferðaþjónustustaðir utan höfuðborgarsvæðisins fái sinn hlut. Því er mikilvægt að grafa ekki undan rekstri þeirra. Við höfum fullan skilning á því að stjórnvöld þurfi tekjur af bílgreininni til að standa undir uppbyggingu innviða. Fjölgun raf- og PHEV bíla á Íslandi hefur dregið úr þeim tekjum.“ — Ég verð bara að lesa þetta eins og þetta er hér. — „Kílómetragjald á þær bifreiðar hefur þegar verið innleitt. Mun hagfelldara og fyrirsjáanlegra væri að halda þeirri vegferð sem og núverandi fyrirkomulagi. Þá verður megnið af flota landsmanna komið í KM gjaldaleiðina eftir nokkur ár án stóráfalla eins og nú stefnir í.“ — Ég endurtek, án stóráfalla eins og nú stefnir í. — „Til að ýta enn frekar undir orkuskiptin, sem þetta frumvarp gerir í raun ekki því það kemur best við eyðslufrekustu bílana, þá mætti skoða að hækka eldsneytisverð á dælu og stýra þannig neyslunni. Þó ber að hafa í huga að slík hækkun telur í vísitölunni okkar dásamlegu.“
Ég hélt að við værum einhvern veginn sammála um að þessi ríkisstjórn ætlaði að fara í þá vegferð að reyna að negla niður verðbólgu og vexti. Hæstv. ráðherrar koma reyndar hér og benda á vaxtalækkanir. Þær eru nú ekki endilega komnar til af góðu. Það er bara því miður þannig. Ef þetta er aðferðin til að halda áfram að berja niður vexti, með því að drepa allt niður, þá eigum við ekki von á góðu.
Ég held áfram, með leyfi forseta, því ég vil aðeins gera þessari umsögn betri skil. Mér hefur þótt sem henni hafi ekki verið gerð nógu góð skil og ekki nógu mikið tillit tekið til hennar í nefndaráliti meiri hlutans. Um kílómetragjald og beinan kostnað bílaleiga við innheimtu segir:
„Umrædd breyting kallar á töluverðan kostnað af hendi bílaleiga við innheimtu og utanumhald. Beinn útlagður kostnaður fyrirtækjanna telur í tugum milljóna þar sem við þurfum að greiða þóknun til kortafyrirtækja af innheimtri fjárhæð. Í tilfelli Hölds má áætla að sú fjárhæð verði um 25 milljónir.“
Við erum bara að tala um eina bílaleigu. 25 milljónir sem það kostar að innheimta gjöldin fyrir ríkið. Þá er ég ekki að tala um auknu skattbyrðina eða allt flækjustigið eða hvernig þeir ætla að ná að innheimta af viðskiptavinum. Við erum að tala um bara kostnaðinn, færslugjöld við að innheimta þetta. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Að auki, eins og í öllum öðrum rekstri, þá er það svo að aldrei næst að innheimta alla fjárhæðina. Reynslan af innheimtu kílómetragjalda af raf- og PHEV bílum sýnir okkur að um 70–90% er að innheimtast. Gangi innheimtan ekki betur en það má áætla að lágmarki 140 milljónir lendi á félaginu vegna þessa. Beinn útlagður kostnaður við innheimtuna fyrir Höld er því varlega áætlaður um 165 milljónir.“
Þetta er bara kostnaður við innheimtuna. Báknið stækkar, kerfið stækkar, flækjustig eykst. En ég held áfram, með leyfi forseta:
„Þá er ótalinn kostnaður fyrirtækisins við breytingar á kerfum, kostnaður við rekstur þeirra, utanumhald og reglubundin skráning sem kallar a.m.k. á eitt stöðugildi á ársgrundvelli.“
Nú ætla ég aðeins að stoppa. Heyrið þið þetta? Heyrið þið þetta flækjustig? Heyrið þið hvað báknið er að stækka alls staðar? Þetta er í einu fyrirtæki. Ímyndið ykkur hvað þetta stækkar hjá ríkinu, hjá stjórnvöldum, alls konar opinberum stofnunum, í eftirlitsiðnaðinum. Í alvöru, ætlum við að fara í þetta? Til hvers ætluðum við að fara í þetta? Jú, til að ná aðeins meiru sköttum af eyðslugrennstu bílunum. Þess vegna virðumst við ætla að fara í þetta. Sú aukna skattheimta er reyndar löngu farin í kostnað við kerfið sjálft. Þetta nær ekki nokkurri átt, frú forseti.
Ég held áfram, með leyfi forseta, með það sem segir undir yfirskriftinni Rafbílar — vilji vs. veruleiki:
„Það virðist ljóst að markmiðið með þessum breytingum sé að þvinga bílaleigur til að kaupa rafbíla í auknum mæli, en eftirspurnin er einfaldlega ekki til staðar. Það er ekki skynsamlegt að birgja sig upp af bílum sem fáir vilja leigja, viðskiptavinirnir eru því miður ekki tilbúnir í rafbílana nema í mjög litlum mæli.“
Ég vil stoppa aðeins hér. Það er alveg á hreinu að bílaleigurnar vilja koma með í þessa vegferð, að fara í rafbílana, þær komu með okkur í þessa vegferð, keyptu fullt af rafmagnsbílum en eins og hér kemur fram vill viðskiptavinurinn ekki þessa bíla. Haldið þið að það væri ekki þægilegra fyrir bílaleigurnar að geta keypt bara rafmagnsbíla? Endursölumarkaðurinn væri frábær. Íslendingar vilja rafmagnsbíla. Þetta er ekki gaman fyrir bílaleigurnar. Þær vilja vera með okkur í þessu en þær eru neyddar til að horfa á raunveruleikann. Ríkisstjórnin virðist ekkert vera að horfa á raunveruleikann, hún lifir í einhvers konar, eins og er sagt, efnahagslegum hliðarveruleika. Það er staðreyndin, efnahagslegur hliðarveruleiki ríkisstjórnarinnar. Þetta er eitt slíkt frumvarp.
Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Bílaleiga Akureyrar – Europcar er stærsti rafbílaeigandi landsins. Hlutfall rafbíla í bílaflota okkar er 8,7%, samanborið við 1 til 12% í helstu samanburðarlöndum kollega okkar.“
Í Svíþjóð, sem er næst á eftir okkur, var það 30% en er farið niður í 12%. Þeir eru búnir að átta sig á þessu líka. Írland er t.d. 1%, Portúgal og Spánn eru 3%. Þetta er augljóst, eins og ég sagði, þeir vilja koma í þessa vegferð en við erum ekki tilbúin. Leyfum bara kerfinu eins og það er núna að halda áfram. Þetta hefur sinn tíma, þetta hefur sinn gang, og þetta mun gerast samhliða tækniframförum. Þetta mun gerast samhliða því að það sé komin umgjörð fyrir rafmagnsbíla landið um kring. Þetta gerist líka samhliða því að önnur lönd verða orðin stærri í rafmagnsbílum. Það er algjör óþarfi að breyta þessu svona núna.
Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Flest þessara landa eru að draga úr fjölda rafbíla í sínum flota vegna lítillar eftirspurnar.“
Frú forseti. Ég sé núna að klukkan er farin að tikka á mig, ég þarf að hætta hér. Ég vil gefa fleiri umsagnaraðilum orðið þannig að ég bið hæstv. forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá. Þetta mál á mikið eftir í umræðunni.
(Forseti (HildSv): Forseti beinir því til hv. þingmanna að tiltaka með skýrum hætti þegar tilvitnun lýkur.)