kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ræðu. Í fyrsta lagi vil ég taka fram að það er dálítið skrýtið að þurfa að verjast þeim ásökunum að ætla sér að skrópa í umræðunni síðar einhvern tímann til þess að kaupa jólagjafir. Það verður bara að koma í ljós hver situr hér og hve lengi. En mér finnst örlítið, þegar við ræðum þessi mál hérna, eins og við séum að tala um hvort við ætlum okkur að innheimta skatta af vegnotendum. Það er auðvitað ekkert umræðan. Við erum í dag að innheimta skatta af vegnotendum, við gerum það í formi annars vegar kílómetragjalds fyrir rafmagnsbíla og síðan erum við að gera það með því að innheimta bensíngjöld af þeim bílum sem keyra á bensíni þannig að það er ekkert nýtt að við séum að innheimta gjöld af akandi vegfarendum. Við erum að bara að fara að gera það með aðeins öðruvísi hætti. Ég vil líka nefna að það er ekkert endilega þannig, eins og mætti halda hér, að hér sé einhver rosalega vinstri sinnuð hugmynd á ferðinni og það er líka talað eins og enginn hafi gert þetta í heiminum. En það eru kílómetragjöld t.d. á þyngri bíla eða rafmagnsbíla í löndum eins og Þýskalandi, Austurríki, Slóvakíu, Tékklandi, Rússlandi, Sviss, Nýja-Sjálandi og svo eru þó nokkur fylki í Bandaríkjunum að prófa sig áfram með kílómetragjöld og þá eru þau reyndar oftast á rafmagnsbíla, svo ég haldi því til haga. Íhaldssamar hugveitur á borð við Reason eða Cato í Bandaríkjunum hafa mælt með „pay per mile“-sköttum, þ.e. kílómetragjöldum, sem valkosti við fjármögnun vegakerfisins á meðan kannski þeir sem hallast lengra til vinstri eru oft meira á því að það sé bara allt í lagi að innheimta háa tekjuskatta og nota þá til að borga fyrir kerfið. Mér finnst hugmyndin – hún er svona nær mínu hjarta að vilja að rukka þá sem nota kerfið heldur en að reyna, eins og þingmaðurinn lagði til, að bara sleppa þessu. Það þýðir að hærri hluti af vegakerfinu yrði greiddur með almennum sköttum.
Ég ræddi hér áðan við hv. þm. Vilhjálm Árnason um veggjöld. Hver er afstaða Miðflokksins til þess að innheimta veggjöld og nota þau í auknum mæli til þess að fjármagna vegakerfið?