157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:10]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar og yfirferðina. Ég ætla að fá að ræða aðeins nokkra punkta sem hv. þm. Pawel Bartoszek minntist á. Ástæðan fyrir því að ég var að gefa mér eitthvað inn í framtíðina, sem er vissulega skrýtið, er nú bara vegna þess að maður lærir af reynslunni. Ég ætla ekkert að segja að hv. þingmenn muni skrópa og sérstaklega ekki hv. þm. Pawel Bartoszek því ég held að það megi halda því fram að hann hafi staðið einna lengst vaktina hér í sumar. Það var ekki hægt að kvarta yfir honum en mjög margir aðrir þingmenn hafa ítrekað látið sig vanta í umræður sem er skrýtið því maður heldur að fólk sem er í meiri hlutanum ætti að vera stolt af þeim málum sem það leggur fram. Það er það sem mér finnst svolítið undarlegt.

Varðandi innheimtu skatta á bifreiðar þá er það alveg á hreinu að við erum að innheimta skatta á bifreiðar og á næsta ári stefnir þetta í 80 milljarða skattheimtu á bifreiðaeigendur. Ríkisstjórnin ætlar hins vegar að forgangsraða með þeim hætti að innan við 50 milljarðar af þessum 80 fari til vegamála. Það er staðreyndin. Ef við drögum vaskinn frá, sem kannski má færa rök fyrir að fari í eitthvað annað, þá er ríkisstjórnin samt ekki að setja til vegamála það sem innheimtist frá bifreiðaeigendum.

Vinstra mál, að það sé skrýtið að líta á þetta sem vinstra mál, sagði hv. þingmaður. Já, en skattahækkanir eru svolítið oft vinstra mál.

Ég ætla að klára að svara því hvar Miðflokkurinn stendur varðandi veggjöld, Miðflokkurinn er algerlega á móti veggjöldum ef þau eru viðbót við aðra skatta. Við erum ekki á móti veggjöldum ef kerfið er endurskoðað. En ef þetta eru alltaf bara auknir skattar þá ertu kominn með tvöfalt kerfi. Það er það sem við erum á móti. Ég get ekki komið inn á allt sem hv. þingmaður sagði en ég held að þetta hafi verið eina spurningin.