157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að reyna að nýta mínu einu mínútu áður en andstæðingar málsins fara hér að þjarma hver að öðrum. Mig langar að spyrja aðeins um veggjöldin áfram vegna þess að þetta skiptir dálitlu máli. Hér voru veggjöld nefnd sem hugmynd eða valkostur við fjármögnun vegakerfisins. Við verðum auðvitað að vera hreinskilin með þetta, við verðum að geta fjármagnað vegakerfið með einhverjum hætti. En dæmið sem er nefnt er Hvalfjarðargöng og það er þá sértæk gjaldheimta við eina tiltekna framkvæmd. Ég get alveg skilið það. Mér finnst hins vegar óraunhæft að ætla að nota veggjöld sem almenna lausn á fjármögnun vegakerfisins, allra vega úti um allt. Mér finnst það óraunhæft vegna þess að þá þyrftu þau auðvitað að vera miklu hærri heldur en sem nemur t.d. bara byggingu Hvalfjarðarganga. Ég er kannski bara með þá spurningu til hv. þingmanns: Sæi hún fyrir sér að styðja það að hér yrðu sett gjaldhlið í kringum höfuðborgarsvæðið eins og stundum hefur verið lagt til og þau gjöld notuð til t.d. uppbyggingar samgangna á höfuðborgarsvæðinu og síðan á leiðum í kringum það?