kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Hvalfjarðargöngin heppnuðust frábærlega, það er bara ekta dæmi. Þá var talað um að þetta væri jú vissulega alger aukning í skattheimtu en það var alltaf önnur leið fær. Það var einhvers konar viðmið sem var haft uppi á þeim tíma. Ég er ekki einu sinni sammála því að það þurfi að vera þannig. Ég er alveg hlynnt fleiri framkvæmdum eins og Hvalfjarðargöngunum. Það sem ég er að segja er að á meðan bifreiðaeigendur eru að greiða miklu meira í ríkissjóð heldur en fer til vegamála þá þarf að endurskoða innheimtu gjalda á bifreiðar í heild. Þú getur ekki bætt endalaust á bifreiðaeigendur — eða þú getur það, ef þú ert í ríkisstjórn eins og situr núna — og farið síðan í alls konar verkefni sem þú ætlar að borga sérstaklega. Mér finnst að þetta þurfi að tala saman.
Svo vil ég benda hv. þingmanni á það, sem sagði að kílómetragjöld væru í mörgum öðrum löndum, að þau eru miklu líkari kílómetragjöldum eins og við vorum með hér fyrir mörgum árum, aðallega á þungavigtarbíla, stærri trukka. Það eru ekki almenn kílómetragjöld á allar bifreiðar.