kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sína góðu yfirferð og fyrir að draga fram hvað þetta mál hefur marga skrýtna anga. Það eina sem ég sé er markmiðið að sækja dýpra í vasa skattgreiðenda. Því langar mig að spyrja hv. þingmann, sem hefur setið með mér ásamt öðrum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þar sem við höfum verið að fjalla um þetta og rætt þetta fram og aftur, hvort að hún sé einhverju nær en ég um hver hinn raunverulegi tilgangur er með þessu máli. Hvernig verður þessi skattheimta sanngjarnari, skýrari? Hvernig verður hún skilvirkari? Hvernig verður íslenskt samfélag betur sett með þessari lagasetningu? Hvaða vandamál er raunverulega verið að leysa? Og það vandamál sem er ætlað að leysa, áttar hv. þingmaður sig á því? Er eitthvað í þessu sem er líklegt til að leysa það vandamál? Ég hef ekki tekið eftir því hvernig það er. Ég spurði hv. þm. Pawel Bartoszek að því áðan og fannst ég ekki fá skýr svör við því. Því vil ég spyrja hv. þingmann að því hvort hún hafi tekið eitthvað betur eftir en ég um hver hinn raunverulegi tilgangur og ávinningur af þessu máli er.