kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég get tekið undir að mér þótti mikill munur eftir að frumvarp um aukin vörugjöld kom fram. Þá lagðist þetta saman og varð einhvern veginn óyfirstíganlegt fyrir marga. Þetta er líka óyfirstíganlegt fyrir marga og það hafa hreinlega komið gestir á fund nefndarinnar sem segja að mörg fyrirtæki muni ekki lifa þetta af. Þannig að ég batt miklar vonir við að það yrðu miklu meiri breytingar á frumvarpinu en svo varð ekki. Og varðandi skattareglurnar þá er svokölluð stöðugleikaregla, sem ég skil að hv. þingmaður kalli skattareglu, löngu sprungin. Það er alveg á hreinu. Þannig að ríkisstjórnin eða fjárlaganefnd þarf bara að taka upp vinnuna við að fara að draga úr útgjöldum því að það er alveg á hreinu að það stenst ekki lengur að allar þessar skatttekjur komi sem ríkið er að gera ráð fyrir að fá á næsta ári þegar við sjáum að þetta hegðunarmynstur hefur orðið til þess, og það sjá það allir, að þessar skatttekjur munu ekki skila sér.