157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir fína ræðu. Mig langar aðeins að spyrja út í tvö orð sem mér finnst vera mikilvægust í þessari umræðu sem eru annars vegar fyrirsjáanleiki og hins vegar samkeppnishæfni. Fyrirsjáanleiki þegar ríkið er að taka meira til sín og bara almennt í öllu sem snýr að því sem við erum að gera í þessum þingsal, að það sé fyrirsjáanleiki í málum, og síðan samkeppnishæfni. Í þessu máli er einn risastór hagsmunaaðili sem er íslensk ferðaþjónusta og þá ekki síst bílaleigurnar innan ferðaþjónustunnar. Það vita það held ég flestir sem hafa kynnt sér íslenska ferðaþjónustu að það sem við Íslendingar erum að selja er flug og bíll. Flug og bíll, þetta er kunnuglegt, þetta er eins og Arnarflug var að gera hér í gamla daga, fyrir einhverjum áratugum. En þetta er það sem er einkennandi fyrir íslenska ferðaþjónustu, 60–65% af erlendum ferðamönnum leigja bílaleigubíl og ferðast um landið.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann — ég veit að þetta er bandormur, þetta er hluti af honum, þetta er ekki frumvarp sem á að fara í gegnum mat á áhrifum: Var tekin einhver sérstök umræða í nefndinni um áhrifamat á þessum hlutum? Þetta er nú stærsta atvinnugreinin okkar og bílaleigur hafa gríðarlega stóra hlutdeild í íslenskri ferðaþjónustu og mikilvægið er mikið. Var þetta rætt t.d. út frá landsbyggðinni og þeim svæðum sem eru fjærst höfuðborgarsvæðinu og Keflavíkurflugvelli, hvaða áhrif þetta hefur á það? Ég sé í umsögnum hagsmunaaðila að það er verið að vara við þessu en var þetta rætt í nefndinni sérstaklega við meðferð málsins?