kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna, sem minnir okkur á að þetta er allt svo nátengt, vörugjöldin sem eru í bandorminum og þetta kílómetragjald. Þetta er auðvitað nátengt. Er búið að gera áhrifamat? Nei, það er ekki búið að gera nægilegt áhrifamat og það er meira að segja þannig að hægt er að sjá í minnisblöðum frá ráðuneytinu að það er mjög valkvætt, í minnisblöðum frá fjármála- og efnahagsráðherra því hann ber nú ábyrgð á þeim, hverju er svarað, sérstaklega þegar kemur að athugasemdum frá bílaleigum. Sumu er svarað, öðru ekki. Þannig að þetta liggur ekki fyrir en í fjölda umsagna er hins vegar búið að benda á neikvæðar afleiðingar sem munu verða og því miður er hættan sú að skattspor vegna þessa kílómetragjalds verði minna, ég tala nú ekki um miðað við allan kostnaðinn sem mun hljótast af þessu frumvarpi fyrir ýmsa aðila.
Hv. þingmaður nefnir hér hagaðila og mig langar í því samhengi að nefna, fyrst hv. þm. Pawel Bartoszek er í salnum, að ef hann kemur upp í ræðustól á eftir þá er ég mjög áhugasöm að heyra í hvaða hagaðilum hann hefur heyrt sem eru bara tilbúnir og klárir í þetta. Hann minntist á það hér áðan. Eini hagaðilinn sem mig grunar að sé klár í þetta eða segist vera nokkuð klár er bara ráðuneytið. Það eru ekki margir sem verða fyrir miklum áhrifum af þessu sem verða klárir eftir nokkra daga í þessa innleiðingu. Og eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson bendir á þá lendir íslensk ferðaþjónusta verulega í þessu. Flug og bíll, Það er búið að taka okkur tíma og mörg ár að vera komin með bílaleigurnar á þennan stað, við erum komin með flottar bílaleigur sem eru búnar að hjálpa okkur að dreifa ferðamönnum um allt land. Hvað gerum við þá eftir öll áföllin? Þá ætlum við að koma með þetta frumvarp. Og hvað gerist? Flug og bíll verður oftar flug og ferðamenn dreifast minna um landið.