157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé svolítið mikilvægt í þessu máli, og í tengslum við vörugjöldin, að það hefur verið einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn síðan hún tók við fyrir réttu ári síðan að hinir svokölluðu landsbyggðarskattar hafa verið mjög ríkjandi. Það hefur kannski verið helsta einkennið í skattheimtunni hversu hart hefur verið gengið að landsbyggðinni. Þetta er raunverulega enn einn þátturinn í því. Ég hélt á sínum tíma eða ég trúði því fyrir nokkrum árum, ætli það séu ekki tíu, fimmtán ár síðan, en þá var átak sem hét Ísland allt árið — sá sem hér stendur lagði til, það tók reyndar nokkur ár að reyna að koma því að, að þetta væri allt Ísland allt árið vegna þess að átakið Ísland allt árið sneri mest að suðvesturhorninu, það er bara þannig, og aðeins inn á Suðurland. Það er svo mikilvægt að hafa í huga að við reynum að koma ferðamönnum sem lengst út á land og við dreifum þessum 350–400 milljörðum á ári sem koma inn beint af erlendum ferðamönnum inn í hagkerfi okkar og þeir dreifist vel, þessir 25.000 bílaleigubílar sem dreifa þessum ferðamönnum vítt og breitt.