157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ísland allt árið. Já, ég held því miður að það eigi undir högg að sækja með núverandi ríkisstjórn því þetta er ekki eina málið. Það er nefnilega ekki bara það að bílarnir og ferðamennirnir dreifist ekki um landið heldur hefur það að ferðamenn dreifast ekki um landið áhrif á alls konar hliðargreinar og fyrirtæki, á litlu sveitirnar, litlu bæina sem lifa á því að ferðamenn komi, sem komu ekki fyrir nokkrum árum, eins og hv. þingmaður segir, þegar farið var í átakið Ísland allt árið. Það eru ekki mörg ár síðan að þú sást varla ferðamann úti á landi á veturna. Meira að segja í höfuðborginni var ekki hægt að halda veitingastöðum opnum í hádeginu vegna þess að það voru færri ferðamenn á veturna. Núna erum við komin með ferðamenn um allt landið, allt árið um kring, en þetta er bakslag í því, liður í að skemma fyrir því.